Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1911, Page 57
201
rtiikla menningarþýðingu fyrir fjelagsmenn. Og þó erum
vjer vissir um, að ókomni tíminn mun leiða enn meiri
framfarir í Ijós, ekki sizt hvað framleiðsluna snertir, sem
að líkindum hefir engu minni þroskaskilyrði en úthlutin,
sem ekki er sjáanlegt að hafi nein veruleg takmörk.
Enn fremur álítum vjer, að þessir aðalfundir, þar sem
sendimenn frá mörgum löndum koma saman, muni hafa
mikla þýðingu fyrir hina alþjóðlegu eindrægni, og verða
til þéss að aptra styrjöldunum, sem eyðileggja friðsæla
starfsemi þjóðanna.
Frá mínu eigin landi vil jeg að eins sýna yður yfirlit
yfir kaupfjelagsskapinn þar, árið 1910:
Tala kaupfjelaganna var: 1,557; fjelagsmannatal :
2,661,799; fjelagseignir: 634 miljónir króna; viðskipta-
veltan: 2,020 mil. kr. og árságóðinn 217'/4 mil. kr.
Á því ér enginn vafi, að hin frjálsa samvinna hefir
stórmikla þýðingu í lífi hinnar ensku þjóðar. Tölurnar
sem hjer eru fram settar, sýna vald samvinnunnar betur
en orð geta gert, og það er ekki auðvelt að benda á
takmörkin fyrir joví, hversu langt vjer getum komizt.
3. Frá Noregi.
Norska sambandsfjelagið er að eins fárra ára gamalt
og hefir ekki haft mikið í veltunni, enn sem komið er.
Samt er ótrauðlega unnið að þróun kaupfjelagsskaparins
víða í Noregi. Viðskiptavelta Sambandsins hafði aukizt
um 49 %, árið sem leið.
4. Frá Svíþjóð.
I sambandsfjelagi Svía eru 471 fjelagsdeild. Fjelags-
mannatala, árið sem leið, var 78,608. Viðskiptaveltan
rúmlega 4'k mil. kr.; árságóði um 71 þús. kr. Sænska
fjelagið kostar miklu til upplýsingar og útbreiðslu, eins
og áður hefir verið vikið á (II. hepti þ. á.), enda eiga
fjelögin þar í vök að verjast gegn einstökum kaupmönn-
um og kaupmannasamtökum.