Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.12.1914, Page 9

Skinfaxi - 01.12.1914, Page 9
SKINFAXI 145 Þetta kver Jóns getur orðið að miklum notum þótt lítið sé. Ættu ungmennafélag- ar því að eignast það og lesa — og breyta eftir því. Með engu þijkkum við betur höf., sem var góður félagi okkar — fyrir starfið, en því, að gera alt það, sem í okkar valdi stendui', til þess að gera málið sem fegurst og hreinast. Vinnum öll að því! J. ív. Hermann Jónasson : Dulrúnir Rvík. 1914. Verð 2,50. Hermann Jónasson verður fyrir sjald- gæfu láni á rithöfundarbraut sinni. Hann varð á unga aldri þjóðkunnur maður sem for- göngumaður í búnaðarframförum og lands- málabaráttunni. En á efri árum sínuin byrjar hann, svo að segja af tilviljun, að skýra frá athugunum um einkennileg sál- arleg fyrirbrigði er hann skynjar í fari sínu. Og athuganir hans þykja þá þegar svo merkilegar, að um leið og þær birt- ast eru þær alment umtalsefni manna á meðal, og teknar til rannsókna og skýr- inga í heimspekisdeild háskólans okkar. Slika nýjunganámu finna fáir menn í fyrsta sinn, þegar æfinni tekur að halla. En einmitt á þessu sviði mun hinn góðkunni höf. reisa sjer óbrotgjarnasfan minnisvarða. I Dulrúnum segir höf. frá mörgum dæm- um um fjarskynjanir sínar og spádrauma, og frá nokkrum samskonar fyrirbrigðum eftir reynslu og frásögn annara. Þá heíir H. J. reynt sjálfur tvískifling þá, milli sálar og líkama, sem Ilar. Niels- son skýrði frá í vor, i fyrirlestri í Rvík. og getið var um í þessu blaði. Svo má heita að alveg beri saman lýsingu H. N. á tvífaraástandi frönsku kenslukonunnar, og sögusögn H. J. um veikindi hans, er hann barnungur liggur fyrir dauðanum, á Mýri í Bárðardal. Hann finnur veru sína klofna í tvent, í „tveimur heimum“ og veit af sjer til skiftis. Rúmið leyfir ekki að rekja mörg dæmi. Bókin nýtur sín heldur ekki nema hún sé lesin sjálf. Bestu kostir hennar eru jiað, að hún bein- ir huga lesarans til sjálfsathugunar, sem er óalgeng í þessum efnum. Skýringar höf. munu minna virði. Þær bera að vísu vott um skarpleik hans og gáfur, en eru á undan tímanum, meðan menn vita svo lílið annað en það, að rnargt er hul- ið í djúpi sálarlífsins, sem enginn fær ráðið. „Dulrúnir“ hinna leyndu afla munu lengi verða viðfangsefni spekinganna, áð- ur en úrlausn fæst. En málinu má ekki gleyma. Höf. rit- ar prýðilega, svo að óblandin gleði er að lesa. Það er auðsjeð, á einum stað í bók hans, að hann veit, hve mikið hann á að þakka breytileika sveitavinnunnar. Einai- Helgason: Bjarhir. Rvík. 1914. 291 bls. Verð kr. 2,50 Einar garðyrkjumaður hefir hér sent íslenskri alþýðu þarfa og góða bók, nokk- urskonar áframhald, eins og helst þurfti með, af Skógræktarriti Guðm. Davíðsson- ar. Þegar sú bók var rituð voru menn. bjartsýnni en nú. Framfaravinirnir bjugg- ust þá við, að renna myndi upp gullöld skógræktarinnar í landinu — að vormenn Islands myndu allmiklu til vegar koma þar. En verkið var meira en menn hugðu, þó að þar muni koma síðar, þegar þjóðinni vex máttur og megin. Nú hafa menn um stund dregið saman seglin, og láta sig dreyma um að prýða heimilin, láta hvern sveitabæ og hvert kauptúnshús gægj- ast út úr birki- og reyni-runnum. Til þeirra manna, sem svona hugsa eru Bjarkir hinn kærkomnasti gestur. A káp- unni er mynd af „framtíðarbænum“ — reisulegum sveitabæ, rnitt í smekklegum skrúðgarði. Þá eru lýsingar og bending- ar um garða, legu þeirra, áburð, girðing- arnar; hvernig skifta má görðunum í göt- ur, blómbeð, runna, laufskála o. s. frv. Margar ágætar myndir af nauðsynlegustu garðyrkjuverkfærum. Þá er mikill fróð-

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.