Skinfaxi - 01.05.1916, Síða 15
SKINFAXI.
63
siðast 1. fl. og ekki taki nema 6 félög
þátt í glímunum11. Samþykt.
14. Iþróttamót. Formaður hreyfði því
máli en enginn tók til máls.
15. Lögin. Till. frá P. Z. „Fundur-
inn felur stjórninni að láta draga saman
lögin með áorðnum breytingum og færa
þau inn í gerðabók félagsins í einni heild,
vélrita þau síðan og senda sitt eintakið í
hvert féiag.“ Samþykt.
16. Aukafundur. „Fundurinn ályktar
að aukafundur verði haldinn á komandi
vori og felur stjórninni að útvega fundar-
stað og ákveða fundinn nánar“.
7. Slysatryggingarsjóður. (Máliðhafði
ekki verio undir búið af form.þ P. Z.
kom með frumvarp sem var samþykt.
Það er svo:
1. gr.
Innan U. M. S. B. skal vera einn alls-
herjar sjóður sem sé sameign allra þeirra,
sem í U. M. S. B. eru. Sjóður þessi
heitir „Slysatryggingarsjóður U. M. S. B.“
og skal hann standa undir stjórn og um-
sjón stjórnar U. M. S. B., er sér um að
ávaxta hann á tryggan hátt.
2.
Sjóðurinn skal myndaður af:
A. Skyldugjaldi er hvíli á öllum félög-
um i U. M. S. B. og sé það 5 aurar af
hverjum félaga. Stjórnir hinna einstöku
félaga sjái um skil á gjaldi þessu til for-
manns U. M. S. B. fyrir 1. október ár
hvert, og í fyrsta skifti fyrir 1. október
1916.
B. !/10 hluti af hreinum tekjum af
íþróttamótinu komi og árlega í þennan
sjóð.
C. Fé er honum kann að hlotnast á
annan hátt.
3. gr.
Sjóðnum má eingöngu verja til að styrkja
þá félaga U. M. S. B. er slasast við þátt-
töku í kappleikjum á íþróttamótum sam-
bandsins og ákveður stjórnin hve mikill
sá styrkur er til hvers eins.
4. gr.
Reglum þessum má ekki breyta nema
á lögmælum aðalfundi U. M. S . B., og
skyldugjaldið á félaginu má ekki hækka
nema meir en helmingur félaganna hafi
tjáð sig hækkuninni fylgjandi.
18. Fjárhagsáætlun fyrir árið 191&
samþykt. Tekjur 530,28. Gjöld eins, en
giskað á að sjóðurinn aukist.
19. Eftir hlutkesti gekk A. E. úr stjórn-
inni.
20. I hans stað var Guðmundur Jóns-
son kosinn i stjórn. Formaður kosinn P.
Zóphóníasson.
21. Varastjórn Andrés Magnússon (for-
maður), Björn Jónsson og Magnús Péturs-
son.
22. Aðstoðarmenn í íþróttamótsnefnd
Þ. Tómasson og Jóhannes Erlendsson.
23. Endurskoðendur Andrés Eyjólfsson
og Bjarni Bjarnason.
24. Fundargerðin lesin upp og sam-
þykt,
Fundi slitið.
Lög U. M. S. B.
1. gr.
Með lögum þessum stofna ungmenna-
félög innan ungmenna-sambands íslands í
Borgarfjarðar- og Mýrasýslu samband sín
á milli er nefnist „Ungmennasamband
Borgarfjarðar.
2. gr.
Tilgangur sambandsins er að sameina
krafta hinna einstöku ungmennafélaga á
sambandssvæðinu til að ná sem best
stefnu eða takmarki ungmennafélaganna.
Tilgangi sínum hugsar U. M. S. B. sér
að ná með þvi að:
a. Halda íþróttamót að sumrinu, þar
sem félagsmönnum gefst kostur á að taka
þátt í íþróttum og keppa til verðlauna, er
nánar skulu ákveðin á aðalfundi ár hvert.