Skinfaxi - 01.12.1916, Page 12
140
SKINFAXI.
eins. En óþurkarnir eru samt þjóðarvoði.
Og sá liugvitsmaður, sem gæti fundið
óbrigðult ráð við þeim, hefði gefið þjóð
sinni það, sem betra væri en miljónir.
Ef til vill er þetta hnoss fundið. Þor-
kell Clementz heitir maður, gamall og góð-
ur ungmennafélagi, liugkvæmur mjög og
velfróður. Hann álítur sig hafa fundið
aðferð til að þurka hey, hve miklar rign-
ingar sem kunna að ganga. Notar hann
til þess hinn náttúrlega hita sem myndast
jafnan þegar blautu heyi er hlaðið sam-
an, og þar að auki véltæki nokkur en þó
einföld. Þorkell sækir um styrk nokkurn
til að ljúka við tilraunir sínar. Og ef
'góðum búfræðingum virðist, eins og sum-
um leikmönnum í þessu efni, að hugmynd
hr. Þ. C. sé einkar merkileg, þá ætti slík-
ur styrkur að vera auðfenginn. Málið er
svo þýðingarmikið, að hver smásigur er
kaupandi dýru verði.
Stephan G. Stephansson
er eitt af frumlegustu skáldum þjóðar
vorrar, víðsýnn, djúphygginn og orðspak-
ur. Sum kvæði hans eru snildarverk.
Hann fór tvítugur til Vesturheims 1873,
og hefir dvalið þar síðan. Hann er alþýðu-
maður og heíir jafnan unnið hörðum hönd-
um fyrir sér og sínum. Þó hefir hann lagt
þann skerf til bókmenta vorra, er seint
mun fyrnast, því að hann hefir auðgað
þær bæði að efni og formi. Þjóð vorri,
landi og tungu ann hann heitt, sem kvæði
hans best sýna. — Landar hans í Vestur-
heimi hafa á ýmsan hátt vottað honum
þökk sína, en íslenska þjóðin hér heima
hefir ekki enn sýnt honum neinn vott virð-
ingar sinnar né þakklætis. Kvæðin hans
falla henni í skaut, og mætti ætla, að
henni væii kært að sýna á einhvern hátt
þökk sína í verki.
Vér undirritaðir fulltrúar: Ungmenna-
félaganna í Reykjavík. Hins íslenska stú-
dentafélags, Stúdentafélags háskólans, Lestr-
arfélags kvenna Reykjavíkur, mentaskóla-
félagsins Framtíðarinnar, verslunarmanna-
félagsins Merkúrs og sambandsstjórnar U.
M. F. í., höfum því afráðið, að gangast
fyrjr því, að bjóða skáldinu hingað í kynn-
isför á komanda vori, og safna því fé, er
til þess þarf. Vonum vér að öllum vin-
um skáldsins verði ljúft að leggja nokk-
urn skerf til þessa, eftir efnum og ástæð-
um.
Gjaldkeri nefndarinnar er Helgi Bergs,
Þingholtsstræti 27, Reykjavík:
Reykjavík 12. desember 191,6.
Ágúsl II. Bjarnason, Guðbrandur Magnússon,
Guðm. Davíðsson, Guðm. Finnbogason.
Gunnl. Finarsson, Helgi Bergs,
Laufey Vilhjátmsdóttir, Stefán Jóh. Stefánsson,
Steinþór 'Guðmundsson, Theódóra Thoroddsen.
íslensk náttúrufræði
og
Eggert Ólafsson.
Á aðalfundi náttúrufræðisfélagsins 5.
febr. f. á. var Iiafist máls á því og rætt
um það, á hvern hátt Eggerts Ólafssonar
yrði minst sem sæmilegast á 200 ára af-
mæli hans, og var það einróma álit fund-
arins, að best ætti við að minnast hans
með því að gera eitthvað sérstakt því starfi
til stuðnings, er hann helgaði krafta sína.
En eins og kunnugt er, má með réttu
telja þá Eggert vicilögmann Olafsson og
Bjarna landlækni Pálsson höfunda íslenskr-
ar náttúrufræði. Rannsóknir þeirra hér á
landi á árunum 1752—1757 voru þær
fyrstu vísindalegu náltúrufræðis rannsókn-
ir á landinu, sem hér voru gerðar, svo
að nokkuð kveði að, og Jmeð ferðabók
þeirra, er út kom 1772, er lagður grund-
völlurinn að islenskri náttúrufræði.