Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.01.1928, Page 7

Skinfaxi - 01.01.1928, Page 7
SKINFAXI 7 likt og flest annað sem manngöfgi er að, þvi lengur sem liugsað er um það og þvi betur, sem þvi er sint, þess meiri þroski og ánægja má að þvi verða. Örnefnasöfnun mun laða unglinga betur en flest annað til þess að skygnast inn í huliðsheim horfinna daga. Heilir herskarar orðmynda og æfintýra frá öllum öldum Islandsbygðar drífa að þeim, reynir þá mjög bæði á imyndunarafl og dómgreind. Er það auðsætt að liér erumaðræða einn hinn merkilegasta menningarþátt þjóðarinnar, og ærin nauðsyn að rekja hann vandlega, en aldrei mun það gert nema margir leggi liönd að verki. Ungmennafélagar mega mikið að gera, ef vel er á haldið, en þeir, sem unna þjóðlegum fræðum og eru fróðir um þau, þurfa að hjálpa ungmennafélögun- um með ráðum og dáð. G. B. Frá Borgfirðingum. Borgarfjörður er fagur, viðfeðma og búsældarlegur. Mætti þvi ætla að sveitamenning stæði þar föstum fót- um, enda liafa þar verið miklar framfarir síðustu áratugi. Nýrækt, húsabætur og vegagerð er betur á vegi slatt í Borgarfirði en flestum héruðum. Bænda- skólinn og lýðskólinn hafa eflaust báðir átt mjög mik- inn þátt í þvi að hef ja menning sveitarinnar. Ungmenna- félög hafa síarfað þar í flestum sveitum um langt skeið, enda mun óvíða hægra að hafa öflug' héraðs- sambönd ungmennafélaga en í Borgarf jarðar- og Mýra- sýslu, sökum góðra vega og legu héraðsins, og sannar- lega ættu skólarnir, en þó einkum lýðskólinn, að hafa niikil áhrif á félagsþroska æskulýðsins, bæði kvenna og karla.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.