Skinfaxi - 01.04.1928, Page 13
SKINFAXI
61
ir fram, verður að beita valdboði vilja síns, til að snúa
kvíðanum í örugga trú. pegar trúin og viljinn leggjast
á eitt, verður alt að víkja.
Framtíðarmerki ungmennafélaganna er enn fjarlægt.
Má því hiklaust gera ráð fyrir, að ýms óhöpp liendi —
sterkur andbyr blási —- áður en J>ví er náð. En þeir
eru margir, sem liræðast erfiðleikana — „bugast á
brotsjóunum“. Slíkt iná ekki koma fyrir í þessum fé-
lagsskap. Enginn iná bika eða liorfa um öxl fyr en
erfiðleikarnir eru sigraðir og markinu náð. — Reynsl-
an sýnir gamalmenninu, að mótlæti og erfiðleikar geta
verið til góðs. J?á reynslu ber ungmennafélögunum að
bagnýta sér — láta torfærusteinana verða lykla að gæf-
unnar heimum. Ef a 11 i r ungmennafélagar liafa þetta
hugfast, mun róðurinn verða léttur og landtakan ör-
ugg. Hver og einn mun uppskera ríkuleg laun fyrfr
það, er hann liefir á sig lagt i fullvisunni um það, að
bafa starfað af trúmensku í þágu góðra málefna.
Jónas Pétursson.
U. M. F. Haukur í Leirár-
og Melahreppi.
Félag þetta var stofnað að Leirá 19. febrúar 1911 af
að eins ellefu stofnendum, þar af tvær stúlkur. Voru
þó í þá daga nær 70 ungra manna í sveitinni. Eftir eitt
ár voru félagsmenn orðnir 36, bættust þá 12 í bópinn,
á fyrsta afmæli l'élagsins; einnig kusum við þá að hcið-
ursfélaga frú pórunni R. Sívertsen í Höfn. Flestir munu
félagsmenn hafa orðið 46 að tölu, var það árið 1922.
Jafnmestur áhugi var innan félagsins frá stofnun þess
til 1920, voru þá og framkvæmdir þess að sama skapi.
Fyrsta árið varð að fá hús leigt til fundarlialda, en