Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.09.1929, Blaðsíða 3

Skinfaxi - 01.09.1929, Blaðsíða 3
SKINFAXI 61 svo að þátttaka geti orðið almenn í bsendaglímu, sem ákveðið er að sambandið gangist fyrir á hátiöinni. Þingið telur sjálfsagt, að glímumenn beri skykkjur til leika.“ „Þingið skorar á ungmennafjelögin að æfa þjóð- dansa af hinu mest* kappi, svo að þau geti haft þá um hönd á hátíðinni. Ennfremur felur þingið sambandsstjórninni að gera ráðstafanir til þess, að úrvalsflokkur, klæddur þjóðbún- ingum, sýni dansa þar. “ „Þingið endurtekur áskorun siðasta sambandsþings um það, að ungm.fjelagar — og heist allir íslendingar, klæðist þjóðbúningum á hátíðinni." „Þingið leyfir sjer að beina þeirri áskorun til iþrótta- manna, að þeir beri ávalt skykkjur til leika“. „Þingið skorar á ungmennafjelögin að starfa áfram að eflingu heimilisiðnaðar, einkum með tilliti til sýning- ar og sölu íslenskra muna, sem Heimilisiðnaðarfjelag ísiands gengst væntanlega fyrir í sambandi við há- tíðina.“ „Þingið felur sambandsstjórn að skora á löggjafar- valdið að heiga þingvikuna sumarið 1930 og rökstyðja áskorunina sem ítarlegast“. 2. Viðvíkjandi fræðslumálum: „Sambandsþing U. M. F. í. leyfir sjer að beina þeirri áskorun til fræöslumálastjórnar rikisins, að hún láti takmarka eða helst banna kenslu erlendra tungu- mála i barnaskólum landsins, en efla þeim mun meira kenslu móðurmálsins." 3. Viðvíkjandi skógrækt: „Sambandsþing U. M. F. í. felur stjórn sinni að vinna að því, að gróðursett verði næsta ár (eða næstu ár) a. m. k. eitt trje fyrir hvern þálifandi íslending, í minningu Alþingishátfðarinnar 1930,“

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.