Skinfaxi - 01.09.1929, Blaðsíða 7
SKINFAXI
11
— eins og næsta tímabil á undan — verið ráöinn til
þess af sambandsstjórn, að annast skóggæsluna, og,
ásamt sambandsfjehirði, að hafa öll umráð yfir skóginum.
Ákveðið er að girðingin, sem nú er mjög farin að
lasnast, verði öll endurbætt í haust eða að vori, nýtt
hlið búið til o. s. frv.
Heimaiðnaður. Sambandsstjórn hefir ekki sjeð ásæð-
ur til að efna til námsskeiða eða annarar starfsemi i
þeim efnum á vegum sambandsins sjálfs, en ýms sam-
bandsfjelög hafa haldið námsskeið i heimaiðju og not-
ið styrks úr sambandssjóði. Sambandsritari — Guðm.
frá Mosdal — hefir einnig stutt þessi málefni, eins og
áður, með eigin starfsemi. Kenslu allmikilli í hagleik og
handiðnum og ýmissi aðstoð. Fór hann og, með þessi
viðfangsefni fyrir augum, til Norvegs s. 1. sumar og
skoðaði vandlega hina miklu norsku landssýningu, er
þá var haldin í Björgvin. Skinfaxi flutti allitarlega rit-
gerð um sýninguna i fjórum heftum s. I. vetur. — Og
auk þess ritgerðir um heimaiðjusýningu og viðbúnað
hennar hjer á landi.
Ýms fleiri málefni hefir sambandið stutt beinlínis eða
óbeinlínis, og sambandsstjórn lagt aðstoð, fyrirgreiðslu
og hvatningu til. Má þar til nefna: sögusöfnun fjelag-
anna, örnefnasöfnun o. m. fl.
Guðm. J. frá Mosdal
Sarubandsritari,
Skipulagsskrá
fyrir Menningarsjóð Vestfirðinga.
1. gr.
Sjóðurinn heitir Menningarsjóður Vestfirðinga, ogf
er stofnaður í minningu Jóns Sigurðssonar forseta, og
skal starfsemi sjóðsins helguð anda hans og dæmi.