Skinfaxi - 01.09.1929, Blaðsíða 15
SKINFAXI
79
tíma, og haga sem líkast því, er fyrirmælin benda til.
Sjerstaklega skal vakin athygli á því, að sögurnar mega
alls ekki vera lengri en ákveðið er. Sögur einstöku
fjelaga, sem búin eru að senda þær, eru svo langar,
að engin leið er að taka i minningarritiö nema lltinn
hluta þeirra. Ruglast þá allt efni þeirra, og verða þær
aldrei við hæfi. Slíkar lengri sögur geta þó verið ágæt-
ur fróðleikur fyrir fjelögin sjálf að eiga. Enda mun
liandritanna verða gætt, og þau send heim ef óskað
er.
Skýrslur og upplýsingar.
Síðastliðinn útgáfutíma Skinfaxa — 1928—29 — var
oftlega beðið um nýjar upplýsingar viðvikjandi hverju
fjelagi: Utanáskriftir til fjelaganna, nafn formanns, tölu
fjelagsmanna o. s. frv. Sýnt var fram á með rökum, að
þar sem flestar slíkar upplýsingar væru teknar að fyrn-
ast, — sumar mjög — eða vantaði alveg, væri þessa
fyllsta þörf, til þess að varna ýmissri óreiðu og ráða
bót á. Mörg fjelög brugðust vel við, og einstöku hjer-
aðssambönd heil gerðu full skil. — En hitt ber ekki að
dylja, að víða er enn á þessum sjálfsögðu skilum herfi-
legur misbrestur. Verður því framvegis gengið enn rík-
ar eftir.
Ný skýrsluform eru nú ger, og verða send hverju
fjelagi. í þeim er nóg rúm, greinilega niður raðað og
auðvelt að útfylla.
Fjögur eyðublöð verða send hverju fjelagi til út-
fyllingar fyrir sama ár. Eyðublöð þessi eru fyrir yfir-
standandi ár, útfyllast og sendast hið fyrsta eftir ára-
rnót. (Á hverju eyðublaði er síðast getið hverjum þau
eiga að sendast.)
Aukaeyðublöð verða send þeim fjelögum, er upp-
lýsingar vantar frá til Sambandsritara (Umf. ísl.) þó
sent kunni þau að hafa skýrslur sínar til hjeraðsstjórna.
hessi eyðublöð eiga að útfyllast, eftir því sem hægt er,