Skinfaxi - 01.09.1929, Blaðsíða 5
SKINFAXI
f9
hjeraðssvæði. Er það annaðhvort eingöngu á hjeraðs-
sambandanna vegum, t. d.: Hjeraðsmót, fyrirlestrastarf-
semi o s. frv. — ellegar í samvinnu við hin einstöku
fjelög. — Loks hefir hvert fjelag að sjálfsögðu sína
eigin starfsemi, sem vart er unt að geta í stuttum út-
drætti.
Störf Sam- Skinfaxi, málgagn fjelagsskaparins, hefir
bandsins. Verið gefinn út í 8 heftum um árið, eftir
ákvæðum sambandsþingsins 1927. Um leið
hefir ritið einnig verið fært i það horf, er sama þing
taldi æskilegt: að Skinfaxi væri meira upplýsingablað,
fregna og tilkynninga viðvíkjandi fjelagsskapnum. Þó
einnig jafnframt með ýmiskonar fróðleiksgreinum og
hvatningar um hverskonar þjóðheilla málefni.
Skinfaxi var fluttur til ísafjarðar á s. 1. hausti, er
Gunnlaugur Björnsson fyrv. ritstjóri hvarf að öðrum
störfum. Björn Guðmundsson kennari að Núpi tók þá
við ritstjórninni í samráði við sambandsritara (Guðm.
frá Mosdal). En útgáfuna að öðru leyti, og afgreiðslu,
hefir sambandsritari annast, og notið aðstoðar góðra
ungmennafjelaga á Ísafirði (i Umf. Árvakri). — Hefir
öll sú vinna verið leyst af hendi án endurgjalds.
Fyrirlestrar hafa verið fiuttir bæði árin, á vegtim
sambandsins á nokkrum hjeraðssambandasvæðum, eftir
því sem tími og ástæður hafa unnist til. Gunnlaugur
Björnsson, fyrv. starfsmaður sambandsins, var í fyrir-
lestraferðum árin 1927 og ’28 um Hsb. Snæfellsnessýslu,
Hsb. Dalamanna, og að nokkru leyti um Hsb. Borgar-
fjarðar. Þar að auki flutti hann og erindi við ýms hjer-
aðsmót og aðrar sainkomur. Jón Sigtryggsson frá Fram-
nesi fór s. 1. vetur — 1929 — og flutti fyrirlestra um
Hsb. Umf. Vestfjarða, Hsb. Umf. Austur-Húnvetninga og
víðar. Fyrirlestrastarf það, sem unnið hefir verið beint
á vegum hinna ýmsu hjeraðssambanda eða einstakra
fjelaga, verður hjer ekki tilgreint.
íþróttir hefir sambandið allmikið stutt. Er það þó