Skinfaxi - 01.09.1929, Blaðsíða 13
SKINFAXI
n
Frá fjelögum og fjelagshögum.
Björn Guðmundsson
hefir nú gerst skólastjóri Núpsskólans. Allan tímann
til þessa (yfir 20 ár) hefir stofnandi skólans — Sigtryggur
prófastur Quðlaugsson — stjórnað sjálfur skólanum með
dæmafárri elju og ósjerplægní. Skinfaxi flytur sjera
Sigtryggi hjartanlegar þakkir fjölmargra ungmennafje-
laga fyrir alt hans dáðríka starf í þarfir íslensks æsku-
iýðs. — Og jafnframt árnar hann Birni heilla og bless-
unar f starfinu.
Jóhannes úr Kötlum
hefir ásamt tveim skáldum öðrum (Einari Benedikts-
syni og Davið Stefánssyni) hlotið þann veg, að fá sinn
Ijóðaflokk valinn til Alþingishátíðasöngva á Þingvöllum
næsta ár. Jóhannes er ungmennafjelagi og munu því
margir fjelagar fagna þessum heiðri hans. Og það því
fremur sem einum kafla Ijóðanna er beint til ungmenna-
fjelaga. Jóhannes var fulltrúi á Sambatidsþinginu i Þrasta-
skógi og kvaddi hann þar Símun av Skarði með vfsu
þeirri, er hjer fer á eftir:
Gakk heill frá garði,
greppur sóknharði,
signdur sól-arði
Símun av Skarði.
Qakk heill til hildar
heiðríkrar snildar. —
Njóta Fróns fylgdar
Færeyjar miidar.
Gunnar Andrew
Iþróttakennari á ísafirói ferðaðíst til útlanda í sumar,
tii þess að kynna sjer nánar ýmsar nýjungar í iþrótta-