Skinfaxi - 01.09.1929, Page 6
70
SKJNFAX!
sjerstaklega til viðbúnaðar þjóðhátiðinni á Þingvöllum
1930. Hjeraðssambönd eða einstök fjelög er íþróttanám-
skeið hafa haldið (tvö s. 1. ár) hafa notið styrks til þess
úr sambandssjóði. Áformað var að halda almennt íþrótta-
námskeið í Reykjavík í þessu augnamiði (í sambandi
við I. S. í.) en skorti þátttöku. Hinsvegar hafa, tvo sið-
astiiðna vetur, allmörg smærri námskeið verið haldin
ýmist á vegum hjeraðssambanda eða einstakra fjelaga,
er hafa notið styrks úr sambandssjóði. Námskeiðanna
frá 1927—28 sem styrks nutu, er getið i Skinfaxa (6. h.
1928). — Námskeiðanna s. 1. vetur hefir einnig að
nokkru verið getið.
íþróttaskóli Sigurðar Greipssohar sambandsfjehirðis
í Haukadal í Biskupstungum tók til starfa á s. 1. hausti
með svo mikilli aðsókn, sem rúm leyfði. Starfaði skólinn
allan veturinn með ágætum árangri. Er allt útlit fyrir,
að skólinn verði íþróttastarfsemi ungmennafjelaganna,
og þó einkum eflingu glímunnar, hinn besti styrkur.
Vikivakarnir, (íslenskir þjóðdansar) byrjuðu með
þvi, að Helgi Valtýsson — sem fremstur manna hafði
kynt sjer efni þau, er þar lágu til grundvallar — hóf
að kenna þá, eftir beiðni sambandsstjórnar, I sambandi
við íþróttanámskeið, sem haldið var í Reykjavík vetur-
inn 1926—27. (Námskeiðið var haldið I saml. af í. S. í.
og U. M. F. í.) Var tilætlun, að Helgi færi síðar um-
hverfis landið til kenslu, en hefir enn ekki haft ástæður
til þess. Helgi kendi þó stðan og æfði flokka í Rvlk,
bæði í Umf. Velvakandi og Kennaraskólanum. — Á s.
1. hausti hjelt Helgi vikivakanámskeið í Reykjavik fyrir
Samb. Ungmf. íslands, með nemendur víðsvegar af
landinu. Aðsókn var allgóð, og gafst námskeiðið vel.
Eftir að nemendur komu heim aftur, voru víða haldin
námskeið, til að kenna dansana. Voru þau hvarvetna
vel sótt, og sumstaðar aðsókn svo mikil, að furðu
gegndi (T. d. I Dýrafirði og víðar).
Þrastaskógur hefir varið hirtur og hans gætt vandlega
á hverju sumri, með því að Aðalstefnn Sigmundsson hefir