Skinfaxi - 01.09.1929, Blaðsíða 9
SKINFAXI
73
5. gr.
Sjóðinn skal ávaxla í Landsbanka ísiands eða Söfn-
unarsjóði íslands. Ávaxta má eigur sjóðsins með kaup-
um á innlendum opinberum verðbrjefum.
6. gr.
Hjeraðssambandi U. M. F. Vestfjarða er falin forsjá
sjóðs þessa og efling. Skal það og fjelög þess beita
sjer fyrir fjársöfnun, augiýsa tekjur sjóðsins, varðveita
skjöl hans og skilríki og gera árlega reikningsskil. Hjer-
aðssamband U. M. F. V. kýs stjórn og endurskoðendur.
Skal stjórn sjóðsins skipuð þrem mönnum, sem kosnir
skulu á ársþingi U. M. F. V. þyki það betur fallið má
þó stjórnin vera skipuð 5 mönnum og myndist fleiri
hjeraðssambönd innan U. M. F. V. á Vestfjörðum skulu
þau öll eiga rjett til hlutdeildar í kosningu á stjórn
sjóðsins og fer um þá hlutdeild eftir ákvæðum og sam-
komulagi sambandanna. Stjórn sjóðsins skal vera ólaun-
að lieiðursstarf.
7. gr.
Nái höfuðstóli sjóðsins að vera 50 þús. krónur eða
meir, má árlega verja a/4 hl. af vöxtum sjóðsins til
styrktar stofnunum eða fyrirtækjum á Vestfjörðum sem
starfa í anda skipulagsskrárinnar, en v/4 vaxta og aliar
aðrar árstekjur leggjast við höfuðstólinn. Nái sjóðurinn
því að verða 100 þús. kr. eða meir, má verja 8/4 hl. af
höfuðstói hans til eflingar mikilsverðum menningarmál-
um, sem eila er ekki unt að hrynda í framkvæmd. Sje
eigi slik þörf fvrir hendi, skal ávaxta sjóðinn áfram
þangað til úthiutun fer fram. Þó skal sjóðurinn eftir
2011 fá að vaxa óhindrað, af árlegum tekjum og vöxtum
í aldarfjórðung i því skyni að vera þá fær um miklar
framkvæmdir á Vestfjörðum.
8. gr.
Skipulagsskrá þessa má endurskoða að 20 árum liðn-