Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.09.1929, Blaðsíða 12

Skinfaxi - 01.09.1929, Blaðsíða 12
76 SKINFAXI bókamarkaðinum, og mun hlýhugur gamalla ungmenna- fjélaga til þess starfs, er bókin á að glæða, hafa ráðið nokkru um verð hennar. Vonandi eiga frömuðir lýðskólanna eftir að senda margt frá sjer, sem skólarnir og ungmennafjeiögin geta notið í sameiningu, og orðið þeim til eflingar. Enda geng jeg þess ekki dulinn, að ungmennafjelögin vænta þaðan þess elds og orku, er þau þarfnast svo mjög til starfs sfns. Þórh. Bjarnarson. íþrótta- og vikivakanámsskeið Hjeraðssambands Ungmennafjelaga Vestfjarða. Námsskeiðið hófst á Þingeyri 2. febr. s. 1. og stóð til 28. s. m. þessar námsgreinar voru kendar: af íþrótt- um, glfma, leikfimi og fyrirskipanir, og Mullers-æfingar, — heilsufræði, vikivakar. Kennarar námsskeiðsins voru: Viggó Nathanaelsson, kendi allar íþróttirnar, Qunnlaug- ur Þorsteinsson hjeraðslæknir kendi heilsufræði og ung- frú Unnur Kristinsdóttir kendi vikivaka. Námskeiðið gekk vel að því fráteknu að „inflúensa" gerði baganlegan lasleika síðari hluta námsskeiðsins. Sprettur fyrir prófið var þó rösklega tekinn. Prófið gekk ágætlega, allir leystu hlutverk sín svo vel, að jeg var stóránægður með það. Að kvöldi 28. var gllmusýning, tókst hún vel og enginn meiddist. Vikivakarnir liöfðu mjög mikla aðsókn 85 þátttakendur auk 60 skólabarna — 145 alls. .leg þakka ykkur nemendur minir góða samveru. Þingeyri I marsnián. 1929. Viggó Nathanaelsson.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.