Skinfaxi - 01.09.1929, Side 16
80
SKINFAXI
fyrir s. 1. ár, 1928 (ártalið stendur á), og sendast til
sambandsritara hið allra fyrsta.
Þinggerð Sambandsþingsins er nú eins og áður
send. hverju fjelagi. Má af henni sjá allr gerðir og
ályktanir síðasta sambandsþings auk útdráttar þess er
Skinfaxi flytur.
Ákvarðanir Sambandsstjórnar nieð hliðsjón af fyrir-
ætlunum þingsins eru þessar helstar: Bændaglíma verður
háð á Þingvöliuin í sambandi við Alþingishátíðina og
íslenskir þjóðdansar (vikivakar) sýndir hvort tveggja á
vegum Sambands Ungmenriafjelaga íslands
Forstöðunefnd hátíðahaldsins hefir þegar sett þessi
tvö atriði í efnisskrá sína. Þessu til viðbúnaðar vill
sambandsstjórn hjer með: 1 fyrsta lagi minna hvert
fjelag á, sem glímu hefir æft eða vikivaka, eða hyggur
að iðka, að æfa af kappi i vetur með það fyrir augum,
að mannval sje til í þessa fyrirhuguðu þátttöku. Um
glímuna mun Sigurður Greipsson sambandsfjeh. senda
nánari orðsendingu — hann er þar sjálfkjörinn forráða-
maður. Um vikivakana er þetta að kunngera. Hvert
fjelag sem iðkar vikivaka eða hyggst að æfa þá í vetur,
skal gera Sambandsstjórn það kunnugt (hverjum sem
næstur er), hið allra fyrsta. Sambandsstjórn gerir ráð
fyrir að geta senl vel færan mann, er fer á staö um
hátíðar til fjelaga er þá hafa gefið sig fram. Sjer sá
maður um, að dansarnir sjeu rjett iðkaðir og i samræmi,
veitir kenslu til viðbótar og hyggur að hverjir þátttak-
enda eru líklegastir á hverjum stað. Búist er við að þeir
sem vikivaka sýni a Þingvöllum, verði að koma til sam-
æfingar (til Reykjavíkur) litlu fyr, og verði til þess veittur
sjerstakur fjárstyrkur.
Guðm. frá Mosdal.
Prentsm. Vesturlands ísafiröi.