Skinfaxi - 01.01.1932, Qupperneq 2
2
SKINFAXl
Eftir að Washburne hafði lokið erfiðu, vísinda-
lcgu kennaranámi, gerðist hann kennari við sveita-
skóla. Hann liafði þar óbundnar hendur og gerði til-
raunir, scm vöktu eftirtckt. Hann vann tvö ár við
barnaskóla í sveit, og gerðist síðar kennari við ágœt-
an kennaraskóla í San-Fraricisko. Á þessum árum
varði hann doktorsritgerð við liáskólann i Kaliforníu.
Árið 1919, þegar Washburne hafði verið kennari
i 7 ár, var lionum falin yfirstjórn barnaskólanna í
Winnetka, smábæ í nágrenni við Cliicago. Bær þessi
var þá óþekktur, eins og að likindum lætur eftir
stærðinni, en á skömmum tíma hafa barnaskólarnir
lians Wasliburne’s gert garðinn svo frægan, að nú
er orðið Winnetka á vörum uppeldisfræðinga og kenn-
ara um gjörvallan hinn menntaða heim. Það, sem
gerzt liefir i Winnetka síðustu 12 árin, undir stjórn
Carletons Washburne, er meðal þeirra stórviðburða,
sem víðsvegar um lönd hal’a glætt vonir og traust
á franitíðarmöguleikum mannkynsins, i liugum fjölda
ágætra manna. Og þetta traust er þess cðlis, og býggt
á þeim rökum, að þeir, sem einu sinni liafa öðlazt
það, glata því ekki. Það er ckki tilgangur minn að
þessu sinni, að ræða ílarlega um Winnetka-skól-
ana, en í fám orðum má segja, að það sc sérstaklega
tvennt, scm einkennir þá: a) Sundurliðun námsefn-
is, í reikningi, lestri, skrift og réttritun, i atriði, scm
taka við hvert af öðru i ákveðinni röð og þannig,
að börnin geia unnið hvert út af fyrir sig, með þeim
hraða, sem hverjum einstaklingi er eiginlegur, numið
sjálf og prófað sig sjálf. Á þenna hátt hefir sparazt
allt að 50% af þeim tima, sem venjulega þarf til að
ná fullkominni leikni i undirstöðuatriðum þessara
námsgreina. b) Fullkomið frelsi kennara og barna
til þess að verja tímanum, sem afgangs er áður-
nefndum fjórum námsgrcinum, á þann liátt, sem