Skinfaxi - 01.01.1932, Síða 6
6
SKINFAXI
og stjórnarfarslegu sjónarmiði. Um þella eru Rúss-
arnir jafn sammála og Jápanar eru um sína skoðun,
en Rússar taka viðfangsefnið fastari tökum, með
meiri ákafa og meiri tækni.
Þessar tvær þjóðir eru þær einu, þar sem skoðanir
á því, livert stefna beri uppeldi þjóðarinnar, eru al-
veg samhljóða.
í Kína óska þeir, sem fyrirspurnunum Iiafa svar-
að, yfirleitt eftir nýrri þjóðfélagsskipun. Sumir telja
nauðsynlegt, að sníða hana að nokkru leyti eftir liinni
fornu menningu, aðrir vilja vestræna menningu og
enn aðrir eru á öndverðum meiði við Rússa og
Japana, scm vilja móta einstaklinginn með tillili til
ákveðins þjóðskipulags, að því leyti, að þeir þykjast
I)ezl ná tilgangi sínum með þvi, að þroska sem bezt
einstaklingana.
Þeir, scm leitazt sérstaklega við að þroska ein-
staklingana.
Meiri hluti uppeldisfrömuða i fleslum löndnm eru
ákveðnir fylgismenn þriðju stefnunnar: þroski ein-
staklinganna, án nokkurrar tilraunar til að ákveða
fyrirfram sérstaka þjóðskipulagsliætti. Sem dæmi
þessa hugsunarháttar má nefna Gandlii í Indlandi
og Einstein í Þýzkalandi. Þessir tveir menn vilja láta
beina öllum áhrifum upþeldisins að þroskun skap-
gerðarinnar, skýrrar hugsunar og ábyrgðartilfinning-
ar gagnvart þjóðfélaginu. Þeir trúa mjög gjarna ein-
staklingum, sem hlotið hefðu þannig uppeldi, fyrir
framtíðar skipulagi þjóðar sinnar.
Mjög margir álíta óaðskiljanlegar hugsjónirnar:
þroski einstaklingsins og þroski þjóðarinnar.
Árekstur milli sannfæringar einstaklingsins og krafa
þjóðarinnar.
Önnur spurning Washburns var á þessa leið: „Ef
það kemur fyrir, að kröfur þjóðarinnar og heitasta
sannfæring einstaklingsins komi í bága livorar við