Skinfaxi - 01.01.1932, Side 9
SKINFAXI
9
25 ára miimlng Isleiizkra ungniemiafélaga.
Tileinkað U. M. F. A. og flult í afmælisfagnaði þess
í janúar 1931.
I.
Svifu svásar
sólargyðjur,
yfir ó'ðul
æskudrauma.
Bárust þær á bylgjum,
björtum, háum,
inn að ströndum
eyjunnar fornu.
Lá þeirra leið,
sem landnema áður,
hinna fornu frænda
frá Noregi.
Hugsjónum helgum
og hreysti vigðar,
eldmóð æskunnar
úr álögum vekja.
Vorhugans vagga
í vetrarhríðum,
æskunnar eign
á Akureyri.
Lítil i fyrstu
i lágum kynnum,
eignaðist arin
fyrir aldarfjórðung.
II.
Hér dafnaði hugsjónin, hjartað sló
og hljóðlega æskuna til sín dró.
Hún hvíslaði: Viltu mér fúslega fylgja,
— hún fór yfir landið sem geislandi bylgja —.
Sérðu ekki að hlíðin er næsta nakin,
nú er skógurinn burtu hrakinn.