Skinfaxi - 01.01.1932, Side 20
20
SKINFAXI
þarf og á að gleyma. Hennar eina takmark er að
skapa börnum sínum betri aðstöðu í lífinu, gera þau
starfhæfari og farsælli en kynslóðirnar, sem nú liggja
að eilífu gleymdar í grasi grónum kirkjugörðunum,
og óblíð örlög léku svo grátt.
Framtíðin á eftir að sýna, livort þetta tekst, en mis-
heppnist það, verður orðið sveitamenning talið með
fornyrðum í orðabókum framtíðarinnar.
Skúli Guðjónsson.
Aths.
Eg hefi ekki viljað neita höf. úm rúm fyrir framanritaða
grein, enda þótt eg efist um, að hann græði á, aS fá hana
.birta. Þykir mér tekið vera á alvörumálum af helzt til mikl-
um glánaskap og alvöruleysi, i ýmsum köflum greinarinnar.
Má þó vera, að hún veki einhvern til þarfrar hugsunar um
U. M. F.-mál, og væri þá vel.
Eg þarf engu að svara grein þessari, öSru en alhugasemd-
unum neSanmáls. Hér er engin tilraun ger til þess, aS hrekja
nokluirt atriSi i svari miiiu til greinarhöf. i Skf. 1.—2. hefti
f. á. En mælast vil eg til þess, aS mcnn lesi þaS svar mitt
á eftir greininni hér að framan. — A. S.
Lestrardelldir iniiaii U. M. F.
I.
Það má svo að orði kveða, að hvert ár færi þjóð vorri
fréttir um nýjar teiðir til að gera iíf manna tilbreytinga-
meira og þægilegra á allan hátt. Með notkun rafmagns er
fundin leið til að nota fallvötn iandsins, til að lýsa og verma
hvert byggt ból. Útvarpið gerir mönnum fært að fylgjast
með því, sem gerist á fjarlægum stöðum, utan lahds og inn-
an. Byggingarlistin er orðin svo fullkomin, að liægt er að
reisa býli við allra liæfi. Bókmenntirnar eru orðnar miklu
íjölskrúðugri en áður var og við fleiri hæfi. Og til að koma