Skinfaxi - 01.01.1932, Blaðsíða 21
SKINFAXl
21
öllum þessum umbótum i verk eru nógar vinnandi hendur
í landinu.
Þetta virðist nú vera sæmilega glæsilegt, en þegar að er
gætt, eru litlar likur til að allra þessara gæða geti notið
nema lítill hluti þjóðarinnar í nálægri framtíð. Uppfynd-
ingamennirnir hafa að visu unnið mikið starf, með þvi að
færa mannkyninu þessar gjafir. En það lítur út fyrir, að
ennþá örðugra lilutverk sé óleyst, en það er að finna ráð
til, að allir geti notið þessara gæða, að birta og ylur geti
komizt inn í livert liús, til hvers gamalmennis og hvers veik-
burða barns, að hver fróðleiksfús maður liafi aðgang að
læsilegum bókum og útvarpi.
Það er hlutverk næstu kynslóðar, að finna þessar leiðir,
og það er hentugt verkefni fyrir U. M. F., að liugsa og ræða
þau mál. Þau liafa þegar byrjað á réttan hátt, með þvi að
brýna fyrir æskulýðnum, að stæla og stj'rkja líkama sinn
og forðast óhollar nautnir. Því að hrcysti kynslóðarinnar
er fyrsta skilyrði þess, að hægt sé að hjálpa henni til fyllri
menningar.
II.
Þegar við hugsum um það, hvað haldið hefir þjóðinni uppi
menningarlega á liðnum öldum, þá vitum við, að það eru
bókmenntirnar, og þó að nú séu komin fleiri tæki en bæk-
ur, til að flytja hugsanir um óraleiðir frá manni til manns.
þá býst eg við, að flestir bókavinir eigi erfitt með að hugsa
sér bókalausa menningu. Fmda eru bókmenntafræðingar þeirr-
ar slcoðunar, að útvarp muni ekki gela útrýmt bókum.
Þegar húsakynni batna til sveila, sem nú er komið vel á
veg, og öll snyrtimennska og hreinlæti cr í framför, þá virð-
ist engin fjarstæða að hugsa sér, að livert heimili á landinu
eignist lítið bókasafn, sem valið sé eftir smekk þeirra, sem
bæinn byggja. En allir heimilismenn geri sér að skyldu, að
hlúa að því og hafa það í lieiðri.
Eg veit, að fyrsta hugsun þeirra, sem þessar línur lesa, er
sú, að bækur séu dýrar og ókleift fyrir flesta að koma upp
slíku safni, en þessar línur eru skrifaðar til þess að benda
á leið fram hjá því skeri.
Þegar löngu vetrarkvöldin koma, vaknar lestrarlöngunin
í mörgum hug, þótt lítið beri á henni ella. Leiðin til að full-
nægja henni hefir vanalega verið lestrarfélög, sem náð hafa
yfir heila lireppa. Eg hefi oft fundið til þess, hvað þetta