Skinfaxi - 01.01.1932, Síða 22
22
SKINFAXI
íyrirkomulag er meingallað. Bækurnar eru keýptar að haust-
inu og eru allan veturinn að sisast bæ frá bæ. Á þessum
ferðalögum eru þær oft grátt leiknar, og of mörgum er kunn-
ugt útlit lestrarfélagsbóka til ])ess, að því þurfi að lýsa. Er
það sanni næst, að bækur lestrarfélaganna eru oftast eins
og heimilislausar og fyrirlitnar flökkukindur.
Lestrardeildir þær, sem eg liefi i huga, vil eg liafa á þann
veg, að 5—10 nágrannar taki sig saman um að kaupa tíma-
rit og bækur árlega, fyrir svo sem 10—15 kr. liver; þessi
fjárhæð er lítið hærri en lestrarfélags-iðgjald eða citt viku-
blað. Iiver deildarmaður veldi það tímarit og hók, sem hon-
um félli bezt í geð; aðcins kæmu þeir sér saman um, að kaupa
ekki sömu rit og að skiptast á um að lesa þau hver hjá öðr-
um. Með þessu móti gætu deildarmenn átt kost á að lesa flest
tímarit og alþýðubækur, sem út kæmu á árinu.
í fljótu hragði virðist munurinn á þessu fyrirkomulagi og
lestrarfélögunum fremur lítill, en hann er einmitt mikill, því
að i stað þess, að bækur lestrarfélaganna eru flökkukindur,
sem allir þykjast eiga og hafa rétt til að fara með eftir vild,
eru bækur deildarmanna gestir af næsta hæ, sem sýna verð-
ur fullan sóma, og eiga á næstu grösum málsvara sinn og
heimilisföður.
Með þessu fyrirkomulagi mætli gera sér von um, að tima-
ritin, sem gefin eru út í landinu, fengju fleiri lesendur, en
þeir eru allt of fáir. Því að allir þeir, sem mynda vilja sér
skoðun á þeim málum, sem eru á dagskrá hjá þjóðunum,
þurfa að lesa þau. Þetta gæti og stutt að því, að sum hlöðin
færu að hugsa um að gefa úrvalsefni sitt út í hentugra 'ormi
fyrir smá bókasöfn.
U. M. F. væri tilvalinn félagsskapur til að stofna til svona
lestrardeilda, og ef þau skorti ekki festu og dug, væri þeim
leikur að vera búin að stofna laglegt bókaasfn á hverjum
þeim bæ, sem ungmennafélagi er á, eftir 2—3 áratugi.
fíergst. Krlstjánsson.
Bréfaskipli.
Ingimundur Ólafsson, Nýjabæ, Meðallandi, V.-Skafl. æskir
bréfasamhands við ungan Þingeying.