Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1958, Síða 4

Skinfaxi - 01.02.1958, Síða 4
4 SKINFAXI störf, svo að talað sé tungu Stephans G. Stephanssona]’. En einhverjir myndu nú spyrja, lwers vegna ég hefði „á náttmálum“ teldð að mér stjórn Skinfaxa. Víst mundi, að ekki sé það fyrir þær sakir, að ég hafi ekki nægum öðrum störfum að sinna, en ef til vill má telja það mér til elliglapa. Þó að ég hafi ekki fyrir ýmissa hluta sakir unnið í hópi ungmennafélaga nema mjög stuttan tíma ævi minnar, hef ég ávallt talið þær hugsjónir, sem starfsem- in hefur verið helguð, þess verðar, að þeim væri lagt lið. Á þvi árabili, sem ég sá ávallt Skinfaxa, en það var á árunum 1912—1916, brá stundum skærri birtu af faxi hans um firði og dali, og sú birta hefur verið mér i minni æ síðan. Á ár- unum 1925—1927 ferðaðist ég sveit úr sveit í nokkrum fylkjum Noregs, þar scm gengi ungmennafélaganna er mest, og flutti fyrirlestra á þeirra vegum, og þtí varð mér Ijóst, að þau stóðu i fararbrodtli fræðslu- og menningarsóknar, sem haft hefur víðtæk og afdrifarík áhrif á vel- ferð norsku þjóðarinnar og átti mikinn þátt í andófi hennar gegn erlendu ofur- valdi á styrjaldarárunum. Þá vann ég nærfellt tvo áratugi fræðslustörf í fjörð- um vestur, í skólum og almenningsbóka- safni, og liafði mikil afskipti af atvinnu- málum og félagsmálum. ÖIl þau störf mín sannfærðu mig um, að svo bezt veita þau varanlega gleði, að þau séu unnin í Ijómanum af faxi þess fáks, er Dagur riður. Nú er á Islandi breytt mjög högum fólks frá því, sem var um aldamótin síð- ustu og upp úr þeim. Fleslir af minni kynslóð höfðu sæmilega í sig og á, en víða var þó ærið þröngt í búi og ekki margra kosta völ fyrir flesta. En ungu fólki var í þann tíð bjarmi í augum, bjarmi frelsisþrár, ættjarðarástar og trú- ar á landið og þjóðina, — trúar á lífið og hinn græðandi og skapandi mátt þess. Sú kynslóð á íslandi, sem nú er á bráð- ustu vaxtarskeiði, Iiefur alizt upp við betri kost en nokkur hinna eldri. Hún er hraustari og glæsilegri en nokkur önnur, sem hér hefur litið dagsins Ijós. Hún hef- ur og notið meiri uppfræðslu en aðrar kynslóðir og á sér flestra kosta völ lil lífsframfæris. Og á því getur ekki leikið nokkur vafi, að hún býr yfir meiri mögu- leikum til mikilla framkvæmda og glæsi- legra menningarafreka en aðrar kyn- slóðir, sem hér hafa lifað. Svo er þá að- eins það, hvort hún gerir sér nógsamlega grein fyrir þeirri ábyrgð, sem á henni hvílir, áibyrgð, sem er meiri og þyngri en allra annarra kynslóða sakir þess, að hún megnar meira. Margur er sá, sem um hana villir. Og þeir, scm helzt ganga á sálnaveiðar, bjóða enn sem fyrir tvö þúsund árum öll ríki veraldarinnar og þeirra dýrð, bjóða háreistari hibýli og aukin þægindi, glæstari klæði og óhóf matar og drykkjar, gleði á skytningi við gerviljós í þeim dökka heimi, þar sem Nótt hvatar för á Hrimfaxa. En enn sem fyrr cr það á vegum Dags, sem sáð er í von og trú og sælli eftirvæntingu og upp- skorið af gleði þess, sem finnur sig ganga á vegum gróðrarafla lífsins. „Seinna á þínum herðum hvíla heill og forráð þessa lands, þegar grónar grafir skýla gráum hærum nútímans,“ sagði skáldið i Ijóði sínu til Ungmennafélags íslands. Það mundu svo mín elliglöp að

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.