Skinfaxi - 01.02.1958, Síða 10
10
SKINFAXI
er hann hét á hina glóeygu Aþenu sér lil
fulltingis í leik: „Heyr gyðja, vertu góð
aðstoð fóta minna.“ Svo heiti ég nú á
íslenzka landvætti að vera góð aðstoð
fóta yðar.“
Björn Gunnlaugsson:
„Lector scholæ — námssveinar! Veit
ég, góðir námssveinar, að oft finnst yður
ég viðutan. Þekki ég skrýtlu yðar urn mig,
að ég hafi mælt eitt sinn, er ég skar
smjörið: „Þetta verður þá hypotenúsen“
— en hvað, sem þessu líður, þá hef ég
fylgzt með glímum yðar. Um útilegu-
menn kunnum vér margar sögur. Enga
tel ég nú slika hyggja land vort, því að
eigi hef ég eða aðrir, sem um landið hafa
ferðazt, rekizt á þá. Útilegumenn voru
taldir glímnir og harðgjörir. Embættis-
menn íslenzkir verða oft að lifa sem úti-
legumenn; kemur sér þá vel, að þeir séu
harðgjörir, og virðingu fá þeir af alþýðu,
séu þeir vel að manni. Illakka ég til að
sjá yður ganga til glímu við Glímu-Gest,
og mun þá athygli mín vera yðar öll.“
Dr. Hallgrímur Scheving:
„Lerlor scholæ, ágætu skólasveinar!
Erum vér nú í sporum Cæsars við Rubi-
cofljót, er hann mælti: „Jacta est alea.“
Er ég í engu hræddur um hag yðar eða
heiður skólans, því að slíkar liafa verið
framfarir yðar í glímu og ástundun. Ný-
lokin próf hafa sýnt, að eigi liefur liðið
nám yðar við hina líkamlegu áraun, og
sannast þar hið forna spakmæli Róm-
verja: „Mens sana in eorpore sano.“ Mun
ég nú leggja yður liin síðustu glímuráð.
Gætið þess að hafa rétta fótstöðu, vinstra
fót aftar hægra, aðeins hogin hné, •—- og
séuð þér í loft færðir til sveiflu, þá að
læsa yður inn að þeim, er sækir, þar eð
þér munuð mýkri og fimari, en vermenn
sterkari. Skuluð þér láta fætur dansa
fimlega og hafa loftköst snör. Þol munuð
þér eigi hafa verra en vermenn, og látið
þá því mæða sig á að láta þeirra
vera í upphafi sóknina. Munu nú eigi
ráð mín verða fleiri að sinni. Glímu-
skjálftinn fer af yður við fyrstu fram-
göngu.“
í þessum töluðum orðum heyrist barið
og kallað:
„Hér sé Guð.“ ?
Lector scholæ segir þá:
„Inspector platearum, gangið til dyra
og leiðið vermenn inn.“
Vermenn lcoma inn frá vinstri. Leggja
af sér byrðar — pokar um öxl í bak og
fyrir. Það er skipzt á kveðjum. Gestur
Bjarnason (Glímu-Gestur) er í farar-
hroddi ásamt Katli í Kirkjuvogi. Heilsa
vermenn lector scholæ, kennurum og
staðarráðsmanni og konu hans.
Lector scholæ:
„Heilir og sælir vermenn, og verið vel-
komnir til Bessastaða. Vona ég, að þér
færið góðar fréttir úr verstöðvum.“
Glímu-Gestur:
„Þökkum vér vermenn góðar kveðjur
yðar. Afla segjum vér góðan, gæftir far-
sælar og mannskaða enga. Erum vér nú
liingað komnir samkvæmt loforði og um-
tali. Ilafa Máríudagar (landlegur) verið
fáir og því fáar stundir til glímufunda.
Þó skal eigi beðizt vægðar, og óskum vér
helzt að ganga til glímu strax, meðan vér
erum heitir af göngu.“
Dr. Scheving:
„Skólasveinum er ekkert að vanhúnaði
að hefja glímuna. Er lið vort skipað sex
skólasveinum, og er Páll Tómasson