Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1958, Blaðsíða 20

Skinfaxi - 01.02.1958, Blaðsíða 20
20 SKINFAXI OG FKAMKVÆMDASTJÓRI Þó að hinn nýi ritari og framkvæmda- stjóri U.M.F.Í. sé gamall og gróinn ung- mennafélagi og hafi starfað að málum ungmennafélaga hér syðra og á Austur- landi, þykir Skinfaxa ástæða til að fara um hann nokkrum orðum og kynna hann í þeim landshlutum, þar sem liann liefur ekki starfað. Skúli Þorsleinsson er fæddur í Stöðv- arfirði á aðfangadagskvöld árið 1906, sonur Þorsteins Mýrmanns, hónda og kaupmanns þar, og Guðríðar, dóttur séra Guttorms Yigfússonar í Slöð, en hann var hinn mesti merkisklerkur og mikill fróðleiksmaður og ágætur kennari. Skúli fór í Hvítárbakkaskóla og stund- aði þar nám í tvo vetur, en siðan fór hann utan og var í skólum í Þýzkalandi, Dan- mörku og Noregi og aí'laði sér margvis- legrar fræðslu. Hann kom heim úr náms- för sinni árið 1930, var um skcið heima, en varð árið 1932 kennari við Austurbæj- arskólann í Reykjavik. Árið 1939 varð hann skólastjóri á Eskifirði og gegndi því starfi, unz hann fluttist ífyrra til Reykja- víkur og varð kennari við Melaskólann. Snemma fékk Skúli áhuga fyrir ung- mennafélagshreyfingunni. Hann stofnaði ungmennafélag heima i sveit sinni og var formaður þess. Á Reykjavíkurárum sín- um starfaði hann að málum ungmenna- SKLJLI ÞDRSTEINSSON félaga, var um hríð formaður U.M.F. Velvakandi í Reykjavík og U.M.S. Kjal- arnesþings. Þá er hann fluttist austur á Eskifjörð, stofnaði hann þar ungmenna- félagið Austra og var formaður ]>ess og driffjöður, og hann tók mikinn og heilla- drjúgan þátt í störfum U.M.S. Austur- lands, var þar löngum formaður. Átli liann í mörg ár gott og veigamikið sam- starf um mál sambandsins við Þórarin Þórarinsson, skólastjóra á Eiðum, og hlésu þeir því lífi i sambandið, að það hafði víðtæk íþróttaleg og menningarleg áhrif þar eystra. Skúli er maður vel máli farinn og á- gætlega ritfær, reglumaður og slarfs- maður mikill og áhugasamur um flest, sem til heilla horfir, samvinnulipur og samstarfsvanur og þaulkunnngur þeim verkefnum, sem hann hefur nú tekið að sér að Iiafa um forystu.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.