Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1958, Síða 26

Skinfaxi - 01.02.1958, Síða 26
26 SKINFAXI verið uppi meiri og minni kennslu i íþróttum á sambandssvæðunum. Hjá sambandi Vestur-Húnavatnssýslu fór fram þjálfun i knattspyrnu. Stjórn sam- bands Eyjafjarðar skýrir frá, að á sambandssvæðinu hafi starfað þrir í- þróttakennarar og kennt frjálsíþróttir, fimleika, knattspyrnu, handknattleik, sund, skíðaíþrótt og þjóðdansa. Starfsíþróttir. Aðgerða í starfsíþróttum utan hinna almennu héraðsmóta er að- eins getið í skýrslu þriggja sambands- stjórna. Samband Kjalarnesþings hélt sér- stakt starfsíþróttamót í Félagsgarði í Kjós. Þar var þátttaka mjög mikil, og voru keppendur 61,32 í dráttarvélaakstri, 18 í búfjárdómum og 11 i starfshlaupi. Segir sambandsstjórn, að áhugi fyrir starfsíþróttum fari ört vaxandi á sam- bandssvæðinu. H. S. Skarphéðinn hélt starfsíþróttamót í Hveragerði, og voru keppendur 65 frá 8 félögum. Varð ung- mennafélag Gnúpverja hlutskarpast. Samband Strandamanna fékk Stefán Ól- af Jónsson til að leiðbeina ýmsum af fé- lögunum á sambandssvæðinu i starfs- íþróttum. Bindindismál. Ástandið í þeim málum virðist fara batnandi. I skýrslu U.M.S. Kjalarnesþings segir: „Ástandið í bind- indismálum er með ágætum á sambands- svæðinu. Öll félögin leggja mikla áherzlu á algert bindindi á samkomum sínum.“ Stjórn sambands Borgarfjarðar skýrir svo frá, að siðan héraðslögregla var stofnuð, hafi ástand á skemmtunum í héraðinu mjög breyzt til batnaðar. Síð- asta þing sambandsins samþykkti áskor- un um að fram fari þjóðaratkvæða- greiðsla um algert vínbann í landinu. „Á- stand í bindindismálum allgolt,“ segir í skýrslu sambands Vestfjarða. Stjórn sambands Skagafjarðar segir svo: „Á ár- inu var stofnað samband félaga i Skaga- firði gegn- áfengisböli. Þess vegna voru nokkrir fundir haldnir i héraðinu um þau mál, og átti ungmennasambandið all- mikinn þátt i þessu, auk þess sem for- maður sambandsins mætti á nokkrum fundum ásamt erindreka landssam- bandsins, Axel Jónssyni." I skýrslu sam- bands Eyjafjarðar er sagt: „Ástand i bindindismálum er sæmilegt og bind- indismálin rædd alltaf öðru hvoru inn- an ungmennafélaganna.“ Stjórn sam- bands Suðurþingeyinga segir: „Mjög sæmilegar horfur.“ Loks segir í skýrslu H.S. Skarphéðins: „Á héraðsþingi eru bindindismálin rædd og gerðar sam- þykktir í þvi efni. Ástandið í þessum málum virðist betra eftir þvi sem fjær dregur þorpum og kaupstöðum.“ Önnur störf. Fjögur af samböndunum geta framkvæmda í skógrækt, Vestur- Húnavatnssýslu, Skagafjarðar, Eyja- fjarðar og Skarphéðinn. Á starfsíþrótta- móti Skarphéðins „var sýndur árangur í garðrækt, sem unglingar höfðu séð um“, og sambandið útvegaði leiðbeinanda um plöntugreiningu i sambandi við Búnað- arsamband Suðurlands. U.M.S. Kjalar- nesþings efndi til sveitakeppni i skák og einnig unglingakeppni. Segir svo í skýrslii stjórnarinnar: „Sambandið leggur á- herzlu á að örva áhuga fyrir skákíþrótt- inni með því að fá skákmeistara til að tefla fjölskák við félagsmenn. Starfsemi þessi hefur tekizt vel og verið vinsæl. U.M.S. Kjalarnesþings efndi til þriggja hópferða á árinu, kvnnisför til Norður-

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.