Skinfaxi - 01.02.1959, Side 3
£kihfaxi
Tímarit U.M.F.l.
1. hefti 1959
•
Útgefandi: Sambandsstjórn
Ungmennafélags Islands.
Reykjavík.
Afgreiösla: Edduhúsinu,
Reykjavík, efstu hæð.
Ritstjóri:
Guðm. Gíslason Hagalín.
Pósthólf 1342. Sími 50166.
•
Félagsprentsmiðjan h.f.
Snillingur og mikilmenni
I ÞjóSminjasafninu í Reykjavik hefur
undanfarnar vikur verið málverkasýning,
sem fólk hefur streymt að, ekki aðeins
úr bænum, heldur einnig úr næstu sveit-
um, bæjum og sýslum. Menn liafa reikað
um salina og horft á hinar mörgu og marg-
breytilegu myndir, sem þakið liafa þar
alla veggi, og þó að það, sem fyrir augun
hefur borið, hafi tekið menn misjöfnum
tökum,liafa þeir allir orðið meira og minna
hrifnir og undrandi, komzt úl úr sínuin
liversdagsheimi inn í veröld dásamlegra
lita og forma, sem túlka fegurð, hrika-
leik og fjölbreytni landsins, andlegt líf
þjóðarinnar og sögu hennar í baráttu við
ugginn, myrkrið og trylldár bamfarir nátt-
úrunnar.
Og engin mundi hafa komið þarna, án
þess að áhrif þess, sem hann hefur séð,
fylgi honum stutta eða langa ævi, hvernig
sem þessum eða hinum kann úr þeim
áhrifum að vinnast. Engir munu heldur
liafa reikað um hina myndauðugu sali, sem
sýna fyrstu fálmandi listatök ungs manns,
frábær og fullgerð verk snillingsins og
listaverk, sem andi hans og snilli liafa
verið að móta, en lífsins stundaglas ekki
leyft honum að ljúka við, án þess að mál-
arinn sjálfur hafi að meira eða minna
leyti orðið ímyndunarafli þeirra viðfangs-
efni, því, senx þessi eða hinn hefur um
liann lieyrt eða séð, skotið upp í hugan-
um og það breytzt að einhverju leyti fyrir
áhi’if myndanna.
Það var ái’ið 1952, að Ásgrímur Jóns-
son listmálari gaf íslenzka ríkinu allar
eignir sínar eftir sinn dag, málverk sín öll
og hús sitt. En það var eklci fyrr en að