Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.02.1959, Page 4

Skinfaxi - 01.02.1959, Page 4
4 SKINFAXI honum látnum, aö jafnvel þeiin, sem bezt höfðu skilyrði til að kynnast þessum arfi, varð Ijóst, liver geipiauðlegð hafði þarna verið gefin íslenzku þjóðinni og livert feikna þrekvirki lá eftir þennan mikla brautryðjanda. í safni hans reyndust vera 423 fullgerðar inyndir frá ýmsum tím- um og þroskaskeiðum og 236, sem ekki voru fullunnar. Svo mikill liafði verið áhugi snillingsins fyrir því, að þjóð lians hiyti sem mesta arfJeifð, að liann liafði á síðari árum sínum keypt dýru verði ýmsar þeirra mynda, sem Jiann liafði áð- ur selt liinum og þessum. Sá, sem lét eftir sig þessa auðlegð, var einu sinni hláfátæltur drengur aust- ur í Flóa, og réðst siðan í það rúmlega tvítugur að fara til listanáms erlendis — á þeirri tíð, sem sldlningur manna á list með íslenzku þjóðinni var svo til enginn. En á einum áratug varð sveitadrengur- inn frábær snillingur og einstæður hraut- ryðjandi, og smátt og smátt náði hann slíkum vitsmunalegum og siðferðilegum þroslca, að allir, sem báru gæfu til að kynn- ast honum, virtu hann og dáðu, og þeir, sem þekktu liann náið, töldu sig vart liafa kynnzt jafnvitrum manni og engum lians líka að andlegri göfgi. Og svo vítt og svo hátt sem liugur lians flaug, svo slcyggn sem hann var á alla fegurð og allan sann- an mikilleik, svo viðlcvæmur sem liann var fyrir öllu ljótu og grófu og þrátt fyrir það, hve öll þiónusta meðbræðra lians við liin eyðandi öfl tilverunnar þjáði liann, unni hann æ meir elílci aðeins sinu lirjúfa og liarðhýla landi, þar sem eldur, ís og váleg veður lieyja Iirikastríð við gróðrar- öflin, heldur líka brostfeldugri þjóð sinni, sem komin úr kreppu nauðaldanna ærist margvislegá, heilluð af glysi og háreysti hamstola heims og villt af æsiveðrum furðulegra umbreytinga og gerningaþoku trylldrar gróðahvggju. Svo lagði hann þá í hendur hinni ungu kynslóð allan þann árangur síns einstæða lifs, sem eftir varð skilinn, sögu þroska síns i myndum, dá- sömun lands sins i undursamlegum litum og formum, innlifun sína í andlegt líf þjóðarinnar á liðnum öldum og i lífsbar- áttu hennar — og loks hús sitt, hið furðu- lega vitni þess, hve þessi maður gerði litl- ar kröfur til daglegra þægindá, skarts og skrúðs. List hans, saga starfs hans, óræk- ur vitnisburður lifshátta hans, allt skyldi þetta vitna og vekja og þá um leið lífga og græða öfl gróandans og gróðrarviljans hjá hinni ungu kynslóð, sem eftir hann tekur arfinn eins og hún tekur við sjálfu landinu og við öllu því, sem kyn- slóðirnar frá seinasta hluta síðustu aldar og helft þessarar hafa skilað af framtíð- arverðmætum. Snillingurinn, mikilmennið, sem ekki hafði tekið annan arf en seiglu eldliertra kyn- slóða, trú endurreisnarmannanna á landið og þjóðina og þær gulltöflur skáldskapar og sögu, sem þrátt fyrir allar nauðir höfðu geymzt, vissi gerzt, hver verðmæti hafa lífsgildi, að þjálfun hæfileika eins og sér- hvers til menningar og þroska á vegi skyld- unnar, með erfðamenningu þjóðarinnar að vegarnesti og fegurð og drengskap að veg- vísi, veitir ein varanlega fullnægingu og að leiðarlokum þá einu sönnu og djúptæku gleði að skila hlut sínum margfaldlega ávöxtuðum í hendur komandi kynslóðum. Líf, starf, list og arfleifð Ásgrims Jónssonar allt er þetta óhagganleg sönnun þess, að sá andi, sem aldamótakynslóðin vildi hefja til

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.