Skinfaxi - 01.02.1959, Side 10
10
SKINFAXI
þau nú flutt nokkuð f jær, en ekki svo langt
frá skólahverfinu sem bezt hefði hentað.
Hlöðu Reyklioltsprests var breytt i sund-
laug og fjósinu i góð íbúðarherbergi. Yar
staðurinn nú allur liinn reisulegasti. Með-
an verið var vinna að löggjöfinni um hér-
aðsskóla á Alþingi 1929, var haldinn sýslu-
fundur i Mýrasýslu. Þar var mikill ráða-
maður Sigurður hóndi Fjeldsted í Ferju-
koti. Honum þótti miklu skipta, að Reyk-
holtsskóli yrði endurbyggður með þeirri
rausn og skörungsskap, sem liæfði hérað-
inu og staðnum. Sigurður vissi, að stjórn-
in lagði til, að Alþingi veitti liáan hygg-
ingarstyrk til hinna nýju héraðsskóla.
Ilinn helminginn lögðu héruðin, sýslu-
sjóðir og einstakir héraðsbúar fram af
frjálsum vilja. Þegar Sigurður sá, að mál-
ið myndi ganga fram á Alþingi, har hann
fram þá tillögu í sýslunefnd Mýrasýslu,
að Mýramenn veittu 30 þúsund kr. í bygg-
ingarstyrk Reyklioltsskóla, svo framarlega
sem sýslunefnd Borgfirðinga veitti jafn-
mikla upphæð. Með því móti tryggði Sig-
urður Fjeldsted með snjöllu átaki 120 þús-
und kr. í skólahúsið, fyrir utan gjafir ein-
stakra manna. Ungmennafélög liéraðsins
voru nú á verði og lögðu fram 20 þúsund
kr. í hyggingarsjóð. Ríkið varð að bæta
jafnmikilli upphæð við, fyrir sitt leyti. Vig-
fús Guðmundsson veitingamaður s>mdi
Reykholtsskólanum mikinn velvilja og
lánaði fé til að hyggja leikfimishús það,
sem skólinn liefur búið að undangengin
30 ár. Fjórmeningar þeir, er staðið höfðu
fyrir kaupum á Hvitárbakka, héldu áfram
að starfa í skóla- og byggingarnefnd Reyk-
holtsskóla. Áttu þeir góðan þátt í, hve vel
gekk að reisa bygginguna og fá álitlega
kennara til skólans. Reykholt liefur alla
stund verið heppið með forstöðumenn og
kennara, sem þangað hafa valizt. Þá var
það skölanum óvænt happ, að til skólans
lcom ungur og álitlegur prestur með góða
kennarahæfileika. Frú lians var ágætlega
menntuð og liafði áður verið vinsæll kenn-
ari i Menntaskólanum. Heimamenn úr
Borgarfirði komu þar til starfa hæði við
kennslu í smíðum, íþróttum og söng.
Kreppa liófst hér á landi 1931, en liún
snerti ekki tilfinnanlega Reykholtsstað.
Þar var myndarlegur húskapur, aðsókn
góð til skólans og gætileg stjórn á fjár-
munum hans. Tókst skólastjóra og kenn-
urum að halda í liorfinu með viðhald
húsa, en um nýhyggingar var lítið að ræða.
Otræðis mýri var frá skólahúsinu niður að
þjóðveginum og engin Ieið að þurrka hana
nema með mjög miklum tilkostnaði. Tveir
hensíngjafar stóðu á lilaðinu framan við
skólann. Heimreið að skólanum var
ósköruleg og lítið um bílastæði á svo
frægum stað. Yið þetta sat, þar lil óvænt
hjálp kom — og frá útlöndum.
(Niðurl.)
SAMBANDSÞING U.M.F.I. 1959.
Eins og öllum ungmennafélögum er
kunnugt, her að lcveðja saman á þessu
ári þing Ungmennafélags Islands.
Venja hefur verið, að þing sambandsins
væru lialdin að vorinu, og samhandsstjórn
hafði ákveðið, að kveðja fulltrúa til þing-
halds í júnímánuði. En nú standa fyrir
dyrum kosningar til Alþingis. Verður þar
kosið um stórmál, og má telja víst, að
fjöldi þeirra manna, sem heita sér á vett-
vangi ungmennafélaganna, hafa af kosn-
ingunum afskipti. Þá er og vandséð, eins og
sakir standa, hver viðhorfin verða til stór-