Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.02.1959, Qupperneq 11

Skinfaxi - 01.02.1959, Qupperneq 11
SKINFAXI 11 þórbetqut þótíatMH SJÖTUGVK Þórbergur Þórðarson er engum öðrum líkur sem maður og rithöfundur. Þess vegna þarf engum að koma á óvart, þó að brugðið sé út af venjunni og minnzt sjötugs afmælis lians réttu ári eftir að bann varð sjötugur. Hann er sem sé fædd- ur 12. marz 1888, en ekki 1889. En livað um það, sjötugur er hann orðinn og því enn unglegri bæði i sjón og anda en ella mætti ætla. Hann fæddist á Breiðabólsstaðarbala i Suðursveit og dvaldi heima hjá foreldrum sínum fram á unglingsárin, en fór svo til Reykjavíkur og hefur átt þar beima síðan. Hann stundaði sjó á skútum í þrjú ár, en vann annars lengi vel ýmis störf, eftir þvi sem kostur var á. Hann stundaði nám í kennaraskóla, las undir gagnfræðapróf og sótti í marga vetur fyrirlestra í íslenzkum fræðum í Háskóla lslands. Hann varð mjög málfróður, og um skeið var liann íslenzku- kennari í ýmsum skólum, en síðustu þrjá áratugi hefur hann eingöngu stundað rit- störf. Þórbergur varð fyrst þjóðkunnur af mála, sem sambandið befur ábuga fyrir eða geta valdið allmiklu um starf þess og hagi. Sambandsstjórn hefur því ákveðið, að kveðja ekki saman þing fyrr en með haust- inu. Bréfi til Láru, sem út kom haustið 1924. Sú bók vakti mikla hrifni, skcmmti fjöl- mörgum og ergði margan manninn, og svona hefur verið um flest það, sem Þór- bergur hefur skrifað. En bækur hans eru orðnar ærið margar. Þórbergur hefur haft mikil áhrif á frá- sagnarstíl ýmissa sér yngri rithöfunda. Hann skrifar mjög sérlcennilegan, en þó afar eðlilegan og lifandi stíl. Still hans er alþýðlegur og laus við tyrfni, og þó viðar Þórbergur að sér orðum úr ýmsum átt- um og er mjög djarfur í vali. En hin sér- kennilegu orð og stundum framandlegu velur hann ekki til þess að sýna, að hann kunni þau eða svo sem til að skreyta stíl- inn, heldur notar þau til að túlka bugsun, liugblæ, tilfinningu, sem án þeirra yrði lesendum ekki lifandi veruleiki, og liann er svo fundvís á þessi orð og glöggur á áhrif þeirra, að sumir meðtaka þau án þess að taka eftir að sérstætt orð bafi verið í setningunni, en aðrir dá snilli þess, sem skrifar. Þá er Þórbergur oft mjög skemmtilegur sögumaður, lætur sitthvað fjúka, sem aðr- ir skirrast við að segja, viðhorf bans stund-

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.