Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1959, Blaðsíða 22

Skinfaxi - 01.02.1959, Blaðsíða 22
22 SKINFAXI 3 áhfjincf fanclá 1959 Um páskana var haldið i Reykjavík hið ár- lega Skákþing Islands, þar sem keppt er um skákmeistaratitil Islands. Þetta mót hefur und- anfarin ár verið haldið á ýmsum tímum, en í framtíðinni mun vera ætlunin að halda það um páskana, m. a. til að auðvelda mönnum utan af landi þátttöku. Stendur þá mótið í rúma viku, og eru tefldar tvær umferðir flesta dag- ana. Kom strax í ljós, að þetta fyrirkomulag er heppilegt fyrir menn utan af landi, því að þeir voru helmingur keppenda í landliðsflokki, og mun það ekki hafa gerzt áður. Er sú þró- un gleðileg og vonandi, að svo haldi áfram. Skákmeistari íslands varð Ingi R. Jóhanns- son, og kom það engum á óvart, því að hann hefur i nokkur ár verið í fremstu röð íslenzkra skákmanna. Ingi hefur tvisvar áður hlotið þennan titil og er þó aðeins 22 ára gamall. Hann sýndi mikið öryggi og yfirburði á mót- inu, vann 9 fyrstu skákirnar, gerði jafntefli í tveim hinum síðustu og tryggði sér þar með sigurinn, hlaut 10 vinninga af 11 mögulegum. 1 næsta sæti urðu jafnir Ingvar Ásmundsson, Laugarvatni, og Ingimar Jónsson, Akureyri, með 8V2 vinning hvor. Hér kemur svo ein af skákum Inga frá mót- inu. Andstæðingur hans er einn af yngri og efnilegri skákmönnum Norðlendinga. Hvítt: Ingi R. Jóhannsson. Svart: Halldór Jónsson. Kóngsindverk vörn. 1. cZ—cJf, Rg8—f6, 2. Rbl—c3, g7—g6, 3. eZ— elh d7—d6, 4. dZ—dk, Bf8—g7, 5. Bfl—eZ. Hvítur velur leið, sem oft hefur verið beitt með góðum árangri gegn kóngsindversku vörninni. 5. —, 0—0, 6. Bcl—g5, Rb8—d7. Það er skoðun skákfróðra manna, að svart- ur verði að leika hér 6. —c5, ef hann vill hafa von um að geta jafnað taflið. Ekki mátti hins vegar leika 6.—e5 vegna 7.dxe5, dxe5, 8. Dxd8, Hxd8, 9. Rd5 og vinnur peð. 7. Ddl—dZ. Hér kom einnig til greina að leika 7,f4. 7. —,e7—e5, 8. dlf—d5, Rd7—c5, 9. fZ—f3, h7 —h6. Skemmtilegur leikur, sem neyðir hvitan til að hörfa með biskupinn, því að 10. Bxh6 leiðir til hagstæðra mannakaupa fyrir svart- an með 10,—Rfxe4 og siðan Dh4f og Dxh6. 10. Bg5—e3, b7—b6, 11. 0—0—0, Kg8—h7. Hvítur hótaði nú Bxh6. 12. gZ—glt, Rf6—g8, 13. h2—hk, f7—f5. Þessi leikur er varla tímabær ennþá. lk. hk—h5! Á þennan hátt opnar hvítur sér línu til sóknar kóngsmegin. lk. — J5—fk, 15. hSxgdt, Kh7xg6, 16. Be3— f2, Bg7—f6, 17. Kcl—bl, Bc8—d7, 18. Hdl—Cl. Hvítur undirbýr aðgerðir á báðum vængj- um. 18. — ,a7—a5, 19. Be2—d3, Bf6—g5, 20. Rgl— hS, Rg8—f6, 21. Rc3—eZ, Dd8—e7. Betra var að leika 21.—Kg7 til að hindra næsta leik hvíts. ZZ. Re2xfkV- Með þessum leik opnar hvitur taflið sér

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.