Skinfaxi - 01.02.1959, Blaðsíða 29
SKINFAXI
29
U.M.F. Vestfjarða. Núpi, 2. janúar 1959.
IJnglinganámskeið á vegum Héraðssamb. U.M.F. Vestfjarða
Fyrirhugað er að lialda tíu daga unglinganámskeið að Núpi á vori
komanda fyrir unglinga á aldrinum 13 til 16 ára. Kennd verður undir-
staða i eftirtöldum íþróttagreinum:
Frjálsum íþróttum. — Fimleikum. — Körfuknattleik.
Blaki. — Knattspyrnu. — Handknattleik. — Sundi.
Kvöldunum verður varið til ýmiss konar tómstundagamans. Má
þar nefna heimsóknir merkra manna, upplestur, ýmsa leika, söng, dans,
kvikmyndasýningar o. fl.
Stjórn sambandsins væntir þess, að þið, kæru félagar, sýnið þessu
máli fullan stuðning og livetjið unglinga á fyrrgreindum aldri til þátt-
töku i námskeiði þessu.
Þátttökugjaldi verður stillt i hóf, svo sem unnt er.
Mætum heil til samstarfs á vori komanda.
Islandi a 111 !
Sigurður R. Guðmundsson (formaður)
Gunnlaugur Finnsson (ritari) Tómas Jónsson (gjaldkeri).
Bókaútgáfa Menningarsjóðs
GÓÐAR UÆKUlt
HAGSTÆTT VERÐ
-)< Gerisi dskrifentlur