Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1960, Page 19

Skinfaxi - 01.11.1960, Page 19
SKINFAXI 115 Pétur klóraði sér í skeggrótinni og beit síðan í einn fingurgóminn á sér. Loks sagði Manga: „ÞaS verSur nú stund og tími þangaS til þau drattast á fætur, hann Birgir og hún Petranna." „HvaS áttu við?“ spurði Pétur argur. „Reyndu að böggla því út úr þér, tuðran þín!“ „Það er nú aðfall, sérðu. Ivannski við gætum ýtt honum svolítið til, og svo gæt- um við prófað að hnýta upp i skepnuna og að draga tiana örlítinn spöl norður á bóginn.“ Þau klæddu sig i liasli og hlupu ofan að sjó. Hér reið á miklu, og þau bökuðu hvalinn af alefli og spvrntu í frosinn sand- inn, svo að þau blánuðu í framan: „Samtaka nú!“ æpti Pétur. En að skepnan þokaðist um þumlung — nei, ónei. „Láttu nú sjá það sé mergur í þér, Mar- grét,“ sagði Pétur og beit á jaxlinn. „Það dýrasta er í hausnum á honum, kelli mín, og hausinn er allur á Birgis landi.“ En öll þeirra áreynsla varð til einskis, og Pétur sagði háðskur: „Hugsa sér — standa og baka lieilan lival! Mikill fádæma fáráður getur ])ú verið, konupísl!“ „A, sá er góður!“ svaraði konan og benti á hann, „varstu ekki sjálfur að baka hann?“ Þau fóru heim og sellust við gluggann. „Verst er,“ sagði Pétur, “að það er engin leið að fela liann fyrir honum Birgi.“ „Nei,“ sagði húsfreyjan, „að minnsta kosti ekki fyrir henni Petrönnu. Bara þetta hefði verið agnarvitund minni hval- tegund.“ „Minni tegnnd, asninn þinn! Nei, eina vonin er, að hann fari á flot á háflæðinni. Ef þú nennir að líta á veðrið, muntu sjá, að hann er að komast í suðvestrið, og þá er ekki fráleitt, að hvalurinn þolcist norð- ur fyrir mörkin, en það er langt lil flæð- ar, og þau sjá hvalinn, Mýrarhyskið, löngu fyrir flóð.“ „Minnsta kosti önnur eins fíknar- og forvitnisflenna og hún Pétranna, sem alltaf liggur í gluggunum ...“ Margrét kafaði djúpl í sína vitsmunahylji, gretti sig af áreynslu, en þaut loks upp og sagði tiýrbrosandi: „Nú veit ég það, Pési minn. Við lokkum þau burt, áður en þau liafa komið auga á blessaðan jólahvalinn. En ef kviknað væri nú í fabrikkunni liérna úti á Stóreyrinni, þá mundu þau stökkva af stað, áður en þau sæju hvalinn okkar.“ Nú varð Pétur smeykur. „Ertu gengin af vilinu, konugarmur!“ sagði hann grinnndarlega. „Ætlarðu að kveikja i fabrikkunni eða hvað?“ „Ekki kveikja i henni, en kalla, að það sé kviknað í henni.“ „Mja, það er það. Joú, það mundi ekki svo galið. Hann Birgir og hún Pétranna mundu vilja vinna til að hlaupa góðan spöl, ef þau ættu þess kost að sjá eignir náungans hrenna. Það er bara, hvort það dugir.“ „En eitlhvað verðum við að gera til að komast hjá að þau fái tiálfan hvalinn,“ sagði Margrét og henni lá við gráti.“ Ekki getum við látið okkur nægja að silja liér eins og keytukönnur og láta reka á reið- anum.“ „Nú, farðu þá, — hlauptu þá yfir að Mýri og kallaðu lil þeirra bakdyra meg-

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.