Skinfaxi - 01.11.1960, Blaðsíða 23
SKINFAXI
\ FORNUM SLOÐUM
Þar sem lækurinn niðar og lyngið grær
og laufvangann strýkur morgunblær,
svo yndistöfrum á engið slær
og álfaborgir á hjöllum,
/>ar nam mín sál vorsins söngvamál
við sólris á norðurf jöllum.
Því leita ég enn á Ijúfa slóð
um tjósar og fagrar nætur
og hlýði á straumsins léttu Ijóð,
lofgjörð við blóma fætur.
Þótt grói iifir spor, hið gullna vor
geymist við hjartarætur.
HAUST
Sumarið Ijúfa léttum skrefum þokar; —
lokið er samfylgd blíðra sólskinsdaga.
Blómið á engi bikar sínum lokar,
brosir ei lengur fífillinn í haga.
Lög eru sett um Ijósa og myrka daga, —
blaði er flett — og byrjuð önnur saga.
Laufvindar hlýir, létt er ykkar göngu,
lóurnar mínar flognar yfir sjóinn,
blöðin á greinum bliknuð fyrir löngu,
bráðum er lindin horfin undir snjóinn.
1 hamrinum á kvöldin hulduraddir tala ...
Vermist þjóð við eldinn, sem vakir inn til dala.
B j ö r g á A s ó I f s s k á I a.