Skinfaxi - 01.06.1966, Qupperneq 3
Eiríkur J. Eiríksson, form. U.M.F.Í.
íslenzk
augu
Avarp við vígslu
félagsheimilis að Borg í Grímsnesi
19. febrúar 1966
Sigurður Nordal: „Mosfell í Grímsnesi
mestur bær á íslandi“.
„Hvernig það?“ spurði ég.
„Staðurinn fagur, — en þaðan eru
runnar mestar og göfugastar ættir ís-
lendinga“.
Við Mosfellinga er átt að sjálfsögðu.
Þeim hefur fróður maður lýst svo, að
þeir hafi verið friðsamir, stjórnvitrir
og rótgrónir í innlendri menningu.
Þeir móta þjóðarsöguna að miklu
leyti frá 1000 til 1118. Kona Ketilbjarn-
ar á Mosfelli er af kristinni móður al-
in og ættin kemur á kristni á Islandi,
skipuleggur íslenzka kirkju og lagar
hana að íslenzkum lögum og menn-
ingu og býr þjóðmenning okkar að
þeim grundvelli allt til þessa dags.
Vel sóma sér aðrar landnámsjarðir
hér í Grímsnesi. Er þar að telja Önd-
verðarnes og Búrfell, er Grímur nam
hvora eftir aðra, en við hann er sveit-
in kennd, er var göfugastrar ættar sem
Ketilbjörn á Mosfelli, en Noregsdrott-
ning Haraldar hárfagra og hann voru
systkinabörn.
Klausturhóla byggði þriðja land-
námsmaðurinn hér, Hrafnkell hálf-
bróðir Ketilbjarnar.
SKINFAXI
Nýlega var að því vikið, að forn
frægð okkar íslendinga væri lítt á vit-
orði þjóða 1 dag.
Ekki skal því hnekkt. En hvar vær-
um við íslendingar í dag án fornmenn-
ingar okkar og íslenzkrar og aftur
segi ég íslenzkrar?
í nýrri alfræðiorðabók hins heims-
kunna brezka útgáfufyrirtækis Pen-
guin, segir um íslendinga, að þeir séu
mest menningarþjóð Evrópu.
Það má sjálfsagt deila um hver forn-
menning sé mest; Grikkja, Rómverja,
Kelta, íslendinga.
En er ekki sá hlutur okkar mestur,
að við höfum varðveitt arfinn bezt?
Arfinn varðveitum við aðeins með
því að ávaxta hann. Sköpun og vöxtur,
líf og barátta verður að eiga sér stað.
Efnahagsmál varða miklu, en þjóð-
ernismál eru ekki fyrst og fremst
fjárhagslegs eðlis — væri svo, myndi
lausn þeirra vera, að ein þjóð sé rík-
ust og stærst — réði öllu.
Athyglisverðurst þjóðanna að þessu
leyti eru ísraelsmenn fyrr og síðar.
Ævinlegur konungur þeirra var Dav-
íð.
Hið mikla ytra veldi Davíðs kon-
3