Skinfaxi - 01.06.1966, Qupperneq 14
mótsins og á annað hundrað sjálfboðaliðar
unnu þar gott starf, þar af um 30 frá UMSE.
Sr. Jón Kr. ísfeld og Þóroddur Jóhannsson
fluttu fræðsluerindi í 6 barnaskólum á sam-
bandssvæðinu um skaðsemi áfengis og tób-
aks.
íþróttastarfið var blómlegt hjá sambandinu.
íþróttakennslu önnuðust íþróttakennararnir
Sigurð Sigmundsson og Halldór Gunnarsson
og ennfremur Þórod.dur Jóhannsson. Umf.
Þorsteinn Svörfuður var stigahæst á héraðs-
móti UMSE í frjálsíþróttum. UMSE sendi 41
keppanda á landsmót UMFÍ að Laugarvatni.
Innan UMSE er einnig keppt í knattspyrnu,
sundi, skíðaíþróttum, bridge og skák, og glíma
og starfsíþróttir eru einnig á dagskrá.
UMSE hafði tvö sumarbúðanámskeið að
Lauglandi í Eyjafirði, og er þetta mjög mikil-
væg starfsemi með tilliti til unga fólksins,
sem er að vaxa upp. Kenndar voru frjáls-
íþróttir, sund, knattspyrna, handknattleikur
og dans. Einnig voru umferðarreglur kynntar
og hjálp í viðlögum. Fyrra námskeiðið var
fyrir börn á aldrinum 11—13 ára, og voru
þátttakendur um 40, cn seinna námskeiðið
var fyrir 14—16 ára unglinga og voru þátt-
takendur um 30.
Ýmiskonar félagsstarfsemi önnnur, t. d.
leikstarfsemi o. fl., var með miklum ágætum
hjá UMSE.
Ungmennasamband Skagfjarðar (UMSS) hélt
47. ársþing sitt að Héðinsmynni í Akrahreppi
24. apríl s. 1. í stjórn sambandsins voru kosn-
ir: Guðjón Ingimundarson, Helgi R. Trausta-
son, Sigurður Jónsson, Stefán Guðmundsson
og Árni M. Jónsson.
Á árinu 1965 var íþróttalíf með bezta móti
í héraðinu, og átti UMSS um 30 keppendur á
landsmóti UMFÍ, en þeir kepptu í sundi,
frjálsíþróttum og knattspyrnu, Auk þess fóru
60 Skagfirðingar í hópferð á landsmótið á
vegum UMSS. Auk áðurgreidra íþróttagreina
eru einnig iðkaðar eftirtaldar íþróttir innan
sambandsins: Körfuknattleikur, handknatt-
leikur, skíðaíþróttir og skák. Umf. Tindastóll
sigraði á héraðsmóti UMSS í frjálsum íþrótt-
um með 93 stigum og í Sundmóti UMSS með
121 stigi. Unglingameistaramót Islands í
sundi var haldið í Sundlaug Sauðárkróks 12.
sept, Hinn ágæti sundmaður Birgir Guðjóns-
son hlaut afreksbikar þann, sem Samvinnu-
tryggingar hafa gefið til að veita árlega bezta
afreksmanni UMSS í íþróttum ár hvert.
Ungmennnasamband Kjalarnesþings (UMSK)
hélt 43. þinng sitt að Hlégarði í Mosfellssveit
12. desember s. I.
Stærsta viðfangsefni UMSK á síðasta ári
var þátttaka sambandsins í landsmóti UMFI
að Laugarvatni, en þar kepptu 41 frá UMSK.
Þessir þátttakendur hlutu 89 stig á mótinu
og urðu í 4. sæti að heildarstigatölu. Sam-
bandsmót voru haldin í frjálsum íþróttum og
starfsíþróttum. UMSK sá um „Fjögurra-
bandalagakeppnina“ 1965, og fór hún fram á
Ármannsvellinum í Reykjavík 5. september.
UMSK og ÍBA fengu 74 stig hvort og UMSE
65 stig, en ÍBK mætti ekki til keppninnar. Þá
keppti UMSK við Héraðssambandið Skarp-
héðinn í frjálsum íþróttum, og fór sú keppni
fram að Laugarvatni. HSK vann með 109
stigum gegnn 94. Áætlað er að slík keppni
fari fram árlega framvegis.
Mikill áhugi ríkti á þinginu fyrir málum
sambandsins og fyrir eflingu þess. Ármann
Pétursson, gjaldkeri UMFÍ og Hermannn Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ fluttu ávörp
og kveðjur frá heildarsamtökunum.
Úlfar Ármannsson var endurkjörinn for-
maður UMSK, en aðrir stjórnarmeðlimir eru:
Gestur Guðmundsson, Sigurður Skarphéðins-
son, Þórir Hermannsson, Birgir Guðmundsson
og Gísli Snorrason,
Víðavangshlaup skóla í Kjalarnesþingi
Sunnudaginn 24. april síðastliðinn fór fram á
íþróttasvæðinu að Hlégarði í Mosfellssveit,
víðavangshlaup skóla í Kjalarnesþingi. Veður
var hið ákjósanlegasta. Rétt til þátttöku höfðu
allir skólar á sambandssvæði Ungmennasam-
bands Kjalarnesþings, sem einnig sá um fram-
14
SKINFAXI