Skinfaxi - 01.06.1966, Síða 19
framkvæmdanefnd. Einn fulltrúi er
frá hvorum aðila, samvinnuhreyfing-
rinni og verkalýðshreyfingunni og
skal tilnefndur til tveggja ára í senn.
Forstöðumaður skólastarfs á vegum
samvinnuhreyfingarinnar á sæti í
framkvæmdanefnd, en hann er jafn-
framt skólastjóri bréfaskólans.
I framkvæmdanefnd bréfaskólans
eiga eftirtaldir menn sæti:
Erlendur Einarsson, forstjóri SÍS
Hannibal Valdimarsson, forseti ASÍ
Guðmundur Sveinsson, skólastjóri.
í samræmi við reglugerð Bréfaskóla
SÍS og ASÍ og yfirlýstan vilja forráða-
^nanna menntastofnunarinnar hefur
verið hafizt handa um útgáfu nýrra
kennslubréfaflokka. Verður aukning-
in fyrst og fremst fólgin í þrennu. Þar
®emur til:
1) Framlag verkalýðshreyfingar-
innar.
2) Framlag samvinnuhreyfingar-
innar.
3) Almennt fræðslu- og námsefni,
samið og kennt í samstarfi við
ýmsa aðila, samtök og einstakl-
inga.
Skal leitast við að gera grein fyrir
aukningunni í hverjum þættinum fyr-
ir sig.
k Framlag verkalýöshreyfingarinnar.
Alþýðusamband íslands mun hið
fyrsta láta semja kennslubréfaflokka
1 4 greinum:
a) Hagrœðing. Samningu kennslu-
bréfanna og kennslu annast
Kristmundur Halldórsson, hag-
ræðingarráðunautur ASÍ.
b) Bókhald verkalýðsfélaga. Höf-
undur bréfanna og kennari verð-
SKINFAXI
ur Guðmundur Ágústsson, hag-
fræðingur og skrifstofustjóri
ASÍ.
c) Vinnulöggjöfin eins og hún horf-
ir við verkalýðshreyfingunni og
beinist að henni.
d) Saga verkalýðshreyfingarinnar
á íslandi.
Ekki hefur endanlega verið gengið
frá samningu tveggja síðari bréfa-
flokkanna svo að hægt sé að greina
frá höfundum og kennurum.
2. Framlag samvinnuhreyfingarinnar.
Samband íslenzkra samvinnufélaga
undirbýr námskeið fyrir starfsfólk
samvinnusamtakanna í ýmsum grein-
um, er snerta starfsemi þess. Verður
bréfaskólinn látinn gefa út kennslu-
bréfaflokka, er hagnýta megi á þeim
námskeiðum. Þessir bréfaflokkar
verða nokkurn tíma í mótun og því
ósennilegt, að þeir verði tiltækir til
almennra nota á þessu eða næsta ári.
Sumir munu líka það sérhæfðir og
miðaðir við þarfir samvinnuhreyfing-
arinnar, að útilokar almenna notkun.
Eftirfarandi flokkar hafa verið áform-
aðir:
a) Kjörhúðin.
b) Búðarstörf í samvinnuverzlu.
c) Deildarstjórn.
d) Vandamál vörurýrnunar.
e) Verkstjórn i frystihúsum.
Samningu kennslubréfanna sem og
kennslu í þessum flokkum munu hafa
með höndum starfsmenn þeir á vegum
samvinnuhreyfingarinnar, er forstöðu
veita og kennslu á fyrrgreindum nám-
skeiðum.
Þá munu samvinnusamtökin láta
hið fyrsta semja kennslubréfaflokka
í þessum greinum:
19