Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1966, Síða 20

Skinfaxi - 01.06.1966, Síða 20
a) Saga samvinnuhreyfingarinnar íslenzku. b) Mannleg samskipti (Public Relations). 3. Önnur nýmæli í starfsemi Bréfa- skóla SÍS ag ASÍ. Til viðbótar við hið sérstaka fram- lag verkalýðshreyfingarinnar og sam- vinnuhreyfingarinnar verður brotið upp á ýmsum nýmælum öðrum í starf- semi bréfaskólans. Þar má sérstaklega benda á fernt: a) Aastoð við fjölmenn heildarsam- tök. a) Aðstoð við fjölmenn heildarsam- ina. c) Aðstoð við starfshópa. d) Gripið á þjóðfélagsvandamálum og boðinn fram stuðningur til úr- bóta. Þar sem mörg af nýmælum þeim, er hér um ræðir, eru enn á fyrsta undir- búningsstigi, er erfitt að gera þeim skil. Þó skal bent á nokkur atriði: a) Aðstoð við fjölmenn heildarsam- tök. Tveim fjölmennum heildar- samtökum á íslandi; Ungmenna- sambandi íslands og Kvenfélaga- sambandi íslands hefur verið gef- inn kostur á að fá gefna út kennslu- bréfaflokka, er orðið gætu þeim til ávinnings. Yrði hér um að ræða fræðslu um ýmsa þætti æskulýðs- mála annars vegar, en aðild kon- unnar og breyttar aðstæður í nú- tíma samfélagi hins vegar. Gæti þetta samstarf bréfaskólans og hinna fjölmennu heildarsamtaká orðið upphaf heillaríkrar þróunai í íslenzku þjóðfélagi með aðild fleiri hliðstæðra heildarsamtaka. b) Aðstoð við frœðslumálastjórnina. Fræðslumálastjóra, Helga Elías- syni, hefur verið greint frá vilja forráðamanna bréfaskólans, að hann tæki að sér í einhverju formi hliðstætt hlutverk og bréfaskólar hafa með höndum sums staðar er- lendis, t. d. í Svíþjóð. í umræddum löndum eru bréfaskólarnir felldir að nokkru inn í hið almenna fræðslukerfi til uppfyllingar og að- stoðar. Er þetta einkum gert, þegar um kennaraskort er að ræða eða erfitt að tryggja sérmenntaða kennslukrafta í ákveðnum náms- greinum. Hefur samstarf bréfa- skólanna og fræðslumálastjórnar- innar gefið góða raun í dreifbýli sumra landa. Niðurstaða umræðna, sem átt hafa sér stað, er sú, að gaumgæfilega skuli athugað fyrir- komulag allt og samstarf fræðslu- málastjórnar og bréfaskóla í þeim löndum, þar sem reynsla er fengin af slíku. c) Aðstoð við starfshópa. Forráða- menn bréfaskólans hafa tekið vel beiðnum, sem borizt hafa um að- stoð við ákveðna starfshópa. Meðal slíkra starfshópa má nefna banka- menn, er hafa komið á framfæri beiðni um hugsanlega fyrir- greiðslu. d) Þjóðfélagsvandamál og sköpun samstöðu til úrhóta. Forráðamenn Bréfaskóla SÍS og ASÍ líta á það sem mikilvægan þátt í starfsemi menntastofnunarinnar að ljá lið til lausnar á aðkallandi þjóðfélags- vandamálum. Af slíkum hefur at- hyglin beinzt fyrst og fremst að tveim verkefnum. Er áformað að Framhald á bls. 25. 20 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.