Skinfaxi - 01.04.1967, Síða 4
STUÓRN
UMSK
í síðasta blaði var skýrt frá ársþingi
Ungmennasambands Kjalarnesþings.
Við þá frétt viljum við bæta því, að
stjórn sambandsins er skipuð þessum
mönnum:
Gestur Guðmundsson, form.
Þórir Hermannsson, varaform.
Sigurður Skarphéðinsson.
Birgir Guðmundsson.
Gísli Snorrason.
Hallgrímur Sigurðsson.
Við höfum t. d. lagt drög að því, að
saminn verði söguleikur til flutnings
á mótinu, og þá vitanlega með sögu-
þræði úr Austfirðinga sögum, enda af
nægu efni að taka. Austfirðir hafa al-
ið ýmsa góða rithöfunda, og okkur
þætti fara vel á því að höfundur sögu-
leiksins yrði úr þeirra hópi.
— Hvað er að frétta af íþróttalífinu
hjá ykkur?
— Við leggjum áherzlu á að efla
það sem mest, sérstaklega vegna
landsmótsins. Við munum hafa
íþróttanámskeið hér á Eiðum í vor, og
reyna að skipuleggja íþróttakennsl-
una sem mest í sumar og alveg fram
að landsmótinu. Eins og kunnugt er,
þá hefur hin gífurlega sókn í vinnu-
aflið hér eystra um síldartímann háð
öllu félagsstarfi og reglulegum íþrótta-
æfingum, en við vonum að íþróttirn-
ar og félagsstarfið fái samt verðugan
skerf af áhuga og athygli, þegar svona
átak er á döfinni hér á Austurlandi.
Landskeppni UIVIFÍ
I skák
Fyrsta landskeppni Ungmennafélags
íslands í skák verður háð dagana 6. og
7. maí n .k. í Leirárskóla í Borgarfirði.
Keppnin hefst kl. 1 síðdegis laugar-
daginn 6. maí.
Heppilegast var talið að hafa keppn-
ina í Borgarfirði með tilliti til fjar-
lægðar milli þátttakenda.
Þetta verður sveitakeppni, og verða
fimm menn í hverri sveit. Miklar von-
ir eru bundnar við að þessi þáttur
starfseminnar megi verða sem beztur
í framtíðinni.
Skákstjóri verður Jón Pálsson, en
hann hefur einnig unnið gott starf við
undirbúning mótsins.
Fimm héraðssambönd hafa ákveðið
að taka þátt í þessu fyrsta skákmóti
UMFÍ: Ungmennasamband Eyjafjarð-
ar, Ungmennasamband Austur-Húna-
vatnssýslu, Héraðssamband Snæfells-
ness- og Hnappadalssýslu, Héraðssam-
bandið Skarphéðinn og Ungmenna-
samband Kjalarnessþings.
Fleiri sambönd höfðu hug á þátt-
töku, en gátu það ekki að þessu sinni
vegna ónógs undirbúnings. Áformað
er að slík skákkeppni fari fram árlega
í framtíðinni, og má búazt við mjög
vaxandi þátttöku.
Nánar verður skýrt frá skákmótinu,
og væntanlega frá úrslitum, í næsta
hefti Skinfaxa.
4
SKINFAXI