Skinfaxi - 01.04.1967, Side 8
Ungmennafélagar settu mestan
svip á „Allsherjarmótið" 17.
júní 1911.
I Umf. Iðunni voru eigöngu
stúlkur, en félagið hafði mjög
mikið samstarf við UMFR,
þannig að félögin voru nónaast
sem tvœr deildir í sama félagi.
lokum upp dálítinn menningarsögu-
legan þátt af þeim félögum, sem líka
er tengdur ungmennafélagshreyfing-
unni.
Jóhannes Kjarval var í hópi þess
áhugasama æskufólks, sem starfaði í
Ungmennafélagi Reykjavíkur fyrstu
árin. Ungmennafélagar höfðu trú á
hinum unga listamanni, og sýndu það
með því að efna til happdrættis um
eitt málverka hans til að styrkja hann
til námsferðar til útlanda. Árið 1908
er fyrst minnst á Kjarval á prenti. Þá
birtist grein um hann í blaðinu Austra,
og greinarhöfundur var Guðbrandur
Magnússon. Kjarval hafði þá haldið
fyrstu sýningu sína hér í Reykjavík,
en Reykjavíkurblöðin höfðu ekki séð
ástæðu til að geta þess. Eftirfarandi
kafli úr grein Guðbrandar sýnir vel
hversu mjög starf ungmennafélag-
anna var tengt trúnni á íslenzka
menningu, sem aftur á móti var sönn-
unargagn þeirra fyrir því að við ætt-
um rétt á sjálfstæði: „... Það, að slík-
ir hæfileikar brjótast í gegn hér við
þessar aðstæður, er þá enn ein sönn-
unin fyrir því, að við séum þess um-
komin að rétta út hendina eftir frelsi
okkar og fullveldi...“
TIL KAUPENDA SKINFAXA
Fyrir ári var því heitið hér í blaðinu, að það skyldi koma út reglulega
— fjögur hefti á ári, og hefur verið staðið við það loforð. Með hjálp
skilvísra kaupenda og allra ungmennafélaga ætti regluleg útkoma
ritsins ekki að vera neinum erfiðleikum bundin í framtíðinni. — Það
eru því vinsamleg tilmæli stjórnar UMFÍ, að áskriftargjöldin verði
skilvíslega greidd. Áskriftargjaldið er kr. 90,00 árgangurinn.
Ungmennafélagar! Gerið Skinfaxa að öflugu málgagni fyrir hreyfingu
ykkar!
8
SKINFAXI