Skinfaxi - 01.04.1967, Síða 30
RadioneHe-verksmiðjurnar
Radionette-verksmi'ðjurnar eru elztu og reyndustu við-
tækj og sjónvarpsverksmiðjur Noregs, stofnaðar 1926.
Þær hafa ávallt staðið í fararbroddi með hvers kon-
ar tæknilegar nýjungar og endurbætur.
Árið 1927 byggðu þær fyrsta útvarpstækið, sinnar
tegundar, sem mátti tengja beint við 220 voit.
í dag eru Radionette-útvarpstækin einnig útbúin hin-
um fjölbreytilegustu tæknilegu nýjungum.
Nú á síðastl ðnu ári hafa Radionette-verksmiðjurnar
teiknað og sent frá sér nýtt transistor ferðaútvarps-
tæki, Explorer, sem þær hafa byggt sérstaklega fyrir
hin erfiðu hlustunarskilyrði hér á landi. Radionette
Explorer ferðatækið er með langbylgju, miðbylgju, 2
stuttbylgjum og bátabylgju. Radionette Explorer er
einnig msð samfelldum bassa og diskantstilli, úttaki
fyrir plötusp.lara og aukahátalara. Radionette ferða-
tækið cr í plastklæddum trékassa og hinn stóri 6”
hátalari skilar ákaflega tærum og góðum hljóm.
Radionette-verksmiðjurnar hafa ekki látið hér við
sitja. Nú hafa Þær byggt segulbandstæki með einni
spólu. Þetta er algjör bylting og hefur segulbands-
tækið Multicorder vakið hvarvetna óskipta athygli.
Segulbandstækið Multicorder er fyrir rafhlöður en
það er einnig hægt að fá lítinn straumbreyti með
því, svo hægt sé að tengja það beint við 220 volt.
Multicorder segulbandstækið er 4 rása og er hægt að
leika af sömu spólunni í fullar tólf klukkustundir.
Þegar sjónvarpsútsendingar hófust í Evrópu réðust
Radionette-verksmiðjurnar í framleiðslu sjónvarps-
tækja.
Markaðurinn í Evrópu var ákaflega harður og verk-
smiðjurnar völdu þá leið að byggja tæki sem skyldu
endast vel og reynast ódýr í viðhaldi. Með þessu ætl-
uðu Radionette-verksmiðjurnar að vinna á. Þetta
tókst og nú eru Radionette tækin seld í yfir 60 lönd-
um. Radionette tækin eru byggð fyrir hin erfiðu
móttökuskilyrði Noregs, því henta þau einnig ákaf-
lega vel hér á landi.
Um áratugi hafa Radionette-tækin verið í notkun
hér á landi og hafa reynst ákaflega vel. Og í dag
eru fleiri þúsund Radionette sjónvarpstækja í notk-
un hér á landi og þeim fjölgar stöðugt.
Ef þér hugleiðið kaup á útvarps- eða sjónvarpstæki,
þá skuluð þér kynna yður verð og gæði Radionette
tækjanna áður en þér festið kaup yðar. Þá viljum
vér góðfúslega benda yður á einn vegamikinn kost
Radionette-tækjanna, og það er að úr þeim öllum
má kippa verkinu mjög auðveldlega (þetta getur hver
og einn gert) svo hægt er að senda bað á nærliggj-
andi viðgerðarverkstæði ef um bilun er að ræða.
Þetta er ótvíræður kostur fyrir sveitir og þorp lands-
ins, því ekki eru hæfir viðgerðarmenn á hverju strái.
Þá stendur verkstæði vort alltaf yður til reiðu, útbú-
ið hæfum mönnum og góðum tækjum.
Radionette-tækin getið þér skoðað í flestum verzlun-
um víða um land. Einnig veitum við yður hvers kon-
ar upplýsingar og sendum mynda- og verðlista hvert
sem er.
Einar
Farestveit &
p. o.
Co. hf. Vesturgötu 2, Reykjavík
Box 991 —Sími 16995
30
SKINFAXI