Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1972, Blaðsíða 5

Skinfaxi - 01.02.1972, Blaðsíða 5
Sigurður Geirdal: DANMERKURFERÐ UMFÍ Þetta er siðari hluti frásagnarinnar, en fyrri hlutinn birtist í 4.-5. hefti 1971 Við skildum síðast við hópinn á Holst- erbro stadion þar sem mótsslit höfðu far- ið fram við hátíðlega athöfn, en það var að kvöldi sunnudagsins 25. júlí. Mánudaginn 26. var lagt af stað áleiðis til Ódense þar sem keppt skyldi við FAF (Fyns Atletik Forbund). Sú keppni átti þó ekki að fara fram fyrr en daginn eftir og gafst því tóm til að skoða sig nokkuð um á leiðinni. Fyrst var hópnum stefnt að Hjerl Hede, ævagömlum búgarði, sem varðveittur hefur verið sem nokkurs kon- ar byggðasafn og safnað þangað gömlum húsum og munum og öllu haldið við í fornum stíl. Þá var komið við á leiðinni í — Lego Land — en flestir kannast við leikföngin með — Lego — vörumerkinu enda eru þau seld um allan heim. Verk- smiðjan hefur komið þarna upp heilu þorpi úr — Lego — kubbum, og mynd- arlegri ferðamannamóttöku. Merkilegasti áningarstaður okkar á leiðinni var þó að mínum dómi höfuð- stöðvar DDGU að Brummersvej í Vejle, þar eru skrifstofur DDGU, afgr. blaðs þeirra „Dansk Ungdom og idræt,“ skjala- söfn og stjórnunanniðstöð samtakanna. Hópurinn safnaðist saman í garði hússins og söng af miklum krafti undir stjórn og undirleik Sigurðar Guðmundssonar. Þess á milli var hlýtt á frásagnir forystumanna DDGU af starfi þeirra og skipulagi, og ekki sakar að geta þess að þama var öll- um hópnum boðið upp á heitar pylsur, sem voru vel þegnar, enda eru menn fljótir að verða svangir á ferðalögum. Um kvöldmatarleytið komum við svo til Odense þar sem Paul Grpnning fonnaður FAF tók á móti okkur og kom hópnum fyrir í Bálbro skole þar sem farangur- inn var skilinn eftir en hópnum ekið rakleitt í Odense Tivoli þar sem kvöldinu var eytt við mikla kátínu. Þriðjudagurinn 27. júlí hófst með skoð- unarferð um Ráðhús borgarinnar, en það er merkileg bygging og fögur, einkum vakti listaverkasalur ráðhússins aðdáun okkar (sjá mynd í 4-5 hefti Skinfaxa 62. árgang) en raunar gildir það sama um aðra sali og vistaverur hússins. Leiðsögn um húsið og frásögn af sögu þess sem fyrir augu bar, var einnig einstaklega vel af hendi leyst og gaf það aukið gildi því sem þarna var að sjá. íþróttakeppnin hófst svo kl. 18,30 við hinar beztu aðstæður á Odense stadion, en greinilegt var þó á keppendum að þreyta var farin að gera vart við sig í liðinu enda fjórði keppnisdagurinn hjá sumum. Heimferðin Miðvikudagurinn 28. júlí var dagur heimferðarinnar, lagt var af stað eld- SKINFAXI 5

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.