Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1972, Blaðsíða 13

Skinfaxi - 01.02.1972, Blaðsíða 13
Starfsíþróttir veróa endurnýjaðar og aukin keppni í þeim. 27. sambandsþing UMFÍ samþykkir að fela stjórn UMFÍ að hlutast til um, að með samvinnu við Fimleikasamband ís- lands, að láta semja og senda út til skóla og ungmennafélaga, sem þess óska, æf- ingaseðla í fimleikum, sem ætlaðir eru til sýninga á héraðshátíðum og við önnur tækifæri. 27. sambandsþing UMFÍ hvetur sam- bandsaðila UMFÍ til þess að taka upp keppni í starfsiþróttum á mótum sínum, og við önnur tækifæri þegar tilefni gefst til. Þingið mælir með því, að viðtakandi sambandsstjórn leiti eftir ráðningu ráðu- nautar í starfsíþróttum í samvinnu við atvinnuvegina og félagasamtök þeirra, er starfa myndi á vegum UMFÍ að þessum málum. 27. sambandsþing UMFÍ bendir á að íþróttamót og íþróttakennsla fara stöð- ugt í vöxt hjá ungmennafélögum. Þegar kallar í síauknum mæli á hæfa menn til starfa. Þingið hvetur því sambandsaðila til að koma á dómaranámskeiðum og leið- beinendaþjálfun í sem flestum greinum íþrótta. 27. sambandsþing UMFÍ hvetur sam- bandsaðila UMFÍ til þess að vinna ötul- lega að útbreiðslu þjóðaríþróttarinnar hver á sínu sambandssvæði. Þingið minni á að íslenzka glíman á nú i vök að verjast sökum skorts á leiðbeinendum. Þá beinir þingið því til íþróttakennaraskóla íslands að gera það sem hægt er til þess að ís- lenzka glíman megi varðveitast og vegur hennar vaxa einnig í vitund þeirra kenn- ara sem sú merka stofnun mun útskrifa á næstu árum. Einnig beinir þingið til Glimusambands íslands, að það beiti sér fyrir sam’-æmdari aðgerðum í dómara- störfum. 27. sambandsþing UMFÍ þakkar ríkis- valdinu stórauknar fjárveitingar til í- þróttasjóðs fyiir árið 1972 skv. fjárlaga- frumvarpinu, er lagt hefur veri ðfyrir Al- þingi, og væntir jafnframt áframhald- andi velviija og stuðnings. Samskipti viS erlend æskulýðssamtök aukist á næstunni. Myndin er af hópi íslenzkra ung- mennafélaga í Danmörku s.l. sumar. SKINFAXI 13

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.