Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1972, Síða 15

Skinfaxi - 01.02.1972, Síða 15
Sumar-Olympíuleikarnir í Miinchen óótjjj Undirbúningi XXI. sumar-olympíuleik- anna er haldið áfram af miklum krafti, en þeir verða háðir í Múnchen í Vestur- Þýzkalandi í ágúst í sumar. Olympíuleik- arnir verða stöðugt stærri í sniðum, og gestgjafarnir hverju sinni leitast við að gera |)á stórfenglegri en dæmi eru til um áður. Olympíuframkvæmdirnar í Mún- chen munu kosta sem svarar 40 milljörð- um króna, og það er kannski ekki furða, þótt ýmsum þar í landi þyki nóg um, enda er það svo, að nú hefur myndast talsverð andstaða við tilstandið á Bæj- aralandi. Fjármálaráðherrann í Bayem hefur t. d. bent á, að reisa mætti 10 full- komnar skólabyggingar fyrir það fé, sem varið er í að reisa hið risastóra þak yfir aðalleikvanginn. Öll borgin er undirlögð Hluta af þakinu mikla yfir leikvanginn í Miinchen iyft í stöðu sína. vegna margs konar byggingarfram- kvæmda og samgönguframkvæmda. En ekkert getur stöðvað Þjóðverja í viðleitninni til að gera þetta veglegustu í])ráttahátíð til þessa. Aðalolympíuborg- in er reist í útjaðri Múnchen. Við aðal- leikvanginn em sæti fyrir 80 þúsund á- horfendur. Byggð eru íbúðarhús fvrir 14 þúsund keppendur og fréttamiðstöð fyrir 4000 fréttamenn. Olympíusvæðið er sagt geysilega vel skipulagt og hið listræn- asta. Yfir því gnæfir 290 metra hár út- sýnisturn. Ymsir óttast umferðaröng- þveiti, þegar áhorfendur streyma út af keppnisstöðunum: 80.000 af aðalleik- vanginum, 12.000 úr aðalíþróttasalnum, 7.500 frá sundstaðnum, 7000 úr hnefa- leikahöllinni, 5000 úr hjólreiðaskálanum, 7000 úr fimleikasalnum og 3.500 úr blak- salnum. Einhvers staðar verða líka kepp- endurnir að komast fyrir og þar að auki 30.000 starfsmenn leikanna. Mörgum stóð ógn af hitanum í Mexí- kóborg 1968 og af hæðinni þar. Núna eru fön-vindarnir mörgum áhyggjuefni í Múnchen, en það eru heitir, stundum ofsalegir, stormar, sem blása frá Alpa- fjöllum yfir Bæjaraland á sumrin, og gætu þeir haft slæm áhrif á keppendur og alla gesti. En þetta verður „mesta íþróttamót heims“ segja Þjóðverjar, og allt bendir til þess að þeim takist að standa við það. SKINFAXI 15

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.