Skinfaxi - 01.02.1972, Side 22
Guðjón Ingimundarson formaður UMSS
flutti skýrslu stjórnar og gjaldkerinn
Helgi R. Traustason, las upp reikninga
sambandsins og skýrði þá. Stefán Peder-
sen framkvæmdastjóri 15. Landsmótsins
gerði grein fyrir bráðarbirgðauppgjöri
sem sýndi að erfitt verður að láta enda
ná saman. Störf UMSS á síðasta starfs-
ári snérust að sjálfsögðu að verulegu leyti
um undirbúning og framkvæmd lands-
mótsins. Á þinginu voru samþykktar
margar ágætar tillögur, um gróðurvernd-
armál, íþrótta- og félagsmál, bindindis-
mál og tillaga sem mælti gegn hugmynd-
um um flutning íþróttakennaraskóla ís-
lands frá Laugarvatni, o. m. fl. um þjóð-
mál og menningarmál. Á þinginu voru af-
hentar viðurkenningar fyrir góða frammi-
stöðu í íþróttum. Birgir Guðjónsson hlaut
Blöndalsbikarinn í sundi fyrir árið 1971,
bezta afrek hans var í 100 m. bringu-
sundi 1.17.8 mín. sem gefur 695 stig.
Edda Lúðviksdóttir hlaut Blöndalsbik-
arinn í frjálsum iþróttum fyrir árið 1971
hennar bezti árangur var i 100 m. hlaupi
21,6 sek. (ísl.met jöfnun) og gefur það
818 stig, þá var Edda kjörin „íþróttamað-
ur ársins“ innan UMSS og fylgdi einnig
fagur verðlaunagripur þeirri nafnbó.t
Verðlaunagripir þessir sem hér um ræðir
vöktu sérstaka aðdáun enda stórglæsi-
legir gripir.
Gestir þingsins voru að þessu sinni
Sveinn Björnsson varaforseti ÍSÍ, Þor-
steinn Einarsson íþróttafulltrúi rikisins
og Hafsteinn Þorvaldsson, Gunnar
Sveinsson og Sigurður Geirdal frá UMFÍ,
fluttu gestirnir allir stutt ávörp.
í stjórn UMSS voru kjörnir:
Guðjón Ingimundarson, formaður,
Stefán Pedersen, varaformaður,
Helgi R. Traustason, gjaldkeri,
Kristján Sigurpálsson, meðstjórn.,
Pálmi Rögnvaldsson, meðstjórn.
Ungmennasamband Borgarfjarðar hélt
sitt 50 ársþing að Leirárskóla í Borgar-
firði 16. janúar s.l, Frá UMFÍ sóttu þing-
ið þeir Hafsteinn Þorvaldsson, Pálmi
Gíslason og Sigurður Geirdal. Frá ÍSÍ
mættu þeir Gísli Halldórsson, Hermann
Guðmundsson og Sigurður Magnússon.
Formaður UMSB setti þingið og skipaði
þá Sigurð Guðmundsson og Jón F. Hjart-
ar þingforseta. Er þingfulltrúar höfðu ris-
ið úr sætum og sungið „Ég vil elska mitt
land“, hófust þingstörf.
Viihjálmur Einarsson flutti skýrslu
stjórnar, og ber hún ánægjulegan vott
um öflugt og vaxandi starf UMSB. Skýrsl-
an var lögð fjölrituð fyrir þingið og var
hún hin vandaðasta svo sem verið hefur
hjá UMSB á undanförnum árum. Þingið
bar vott um allgóðan undirbúning og
skipulagningu á störfum þess, sem sést
bezt á því, að öll félög innan Sambands-
ins sendu fulla tölu fulltrúa og sum sendu
varafulltrúa sína til viðbótar, og er það
einstök mæting.
Aðalmál þingsins að þessu sinni var
hið mikia verkefni sem UMSB hefur ver-
ið falið, en það er að halda 15. landsmót
UMFÍ árið 1974, mikill hugur var í þing-
Þingforsetarnir
SigurSur R. Guð-
mundsson og Jón
H jartar.
22
SKINFAXI