Skinfaxi - 01.02.1972, Qupperneq 24
UNDRABARNIÐ
SHANE GOULD
Menn eru fyrir löngu farnir að spá í
það, hverjir séu líklegastir sigurvegarar
á sumar-olympíupleikunum í ár, og þótt
reynslan sanna að slíkir spádómar geti
verið fallvaltir, þá efast víst enginn um
að ástralska stúlkan Shane Gould muni
sópa að sér gullverðlaununum í öllum
þeim sundgreinum, sem hún tekur Jjátt í.
Shane Gould var aðeins 14 ára, þegar
hún setti fyrsta heimsmet sitt í fyrra, og
nú í ár hefur hún „fullt hús“, þ. e. hún á
heimsmet á öllum vegalengdum í skrið-
sundi kvenna. Og árangur hennar er sem
hér segir:
100 m. 58,5 sek.
200 m. 2:05,8 mín.
400 m. 5:31,2 mín.
800 m. 8:58,1 mín.
1500 m. 17:00,6 mín.
Þessar tölur eru síðan í janúar, og vel
má vera að hún sé að hrinda einhverjum
metanna þessa dagana. Keppni þessarar
15 ára stúlku sýnist ekki vera lengur við
Shane Gould er hraðskreið með öllum sundað-
ferðum. Hér bregður hún sér á flugsund.
15 ára telpa
sem á öll heims
metin í skrið-
sundi kvenna.
met eða árangur kypsystra sinna, heldur
er hún að ógna karlmönnum, sem enn
vilja kalla sig sterkára kynið. Það þarf
víst ekki að taka það fram, að öll eru
metin betri en íslandsmet karla á þessum
vegalengdum. Tími hennar á 100 m. er
1/10 betri en heimsmet Johnny Weiss-
múllers (Tarzans) frá 1922. í 200 m. er
tími hennar betri en heimsmet karla var
1955. Ástralíumaðurinn John Konrads
vakti heimsathygli 1958, er hann setti
heimsmet í 400 m., en sá tími var heilum
þremur sekúndum lakari en met ungfrú
Gould nú, og hún hefði sigrað með 6,1
sek. forskoti í 400 m. karla á olympíuleik-
unum 1956. Þá hefði tími hennar í 1500
m. einnig nægt til yfirburðasigurs í karla-
flokki á olympíuleikunum í Tokíó 1964,
og tími hennar er líka betri en heimsmet
karla það ár.
Flestir standa ráðþrota gagnvart því
að skýra þennan einstæða afreksferil.
Hún syndir með „gamla laginu“, þ. e.
engin ný tækni er á ferðinni, en eflaust
notar hún betur sundtæknina en öðrum
hefur tekizt. Shane Gould er hlédræg og
hógvær unglingur. Hún er 1.72 m. á hæð
og 60 kg. á þyngd. Keppnisskapi hennar
er við brugðið, og kunnugir segja, að það
sitji klókt höfuð á hennar ungu herðum.
24
SKINFAXI