Skinfaxi - 01.02.1972, Síða 25
Gleymdur —
en ekki hættur
Brezki grindahlauparinn David Hemery
sigraði flestum á óvart í 400 m. grinda-
hlaupi á olympíuleikunum í Mexíkó 1968.
Síðan hefur verið hljótt um hann, en
hann stundar nám í Harvard-háskólanum
í USA. Hann æfir í Boston, og er sagður
ætla sér að keppa í Múnchen að því er
brezk blöð herma. Eftir olympíusigurinn
og heimsmetið hefur hann lítið keppt.
Þessi hlédrægi og sérlundaði piltur hafði
mestan hug á að snúa sér að 110 m.
grindahlaupi eða tugþraut, vegna þess að
allir kröfðust þess að hann ynni nýja og
nýja sigra í 400 m. grindahlaupi. Nú ætl-
ar hann samt að einbeita sér að „gömlu“
greininni, og það er ekki ólíklegt að
hann minni á tilveru sína í Múnchen í
sumar.
David Hemery hyggst verja olympíutitil sinn
frá Mexíkó.
(jlœAilecjir
Cetrar-clifimpíuleikar
Vetrar-olympíuleikarnir í Sapporo fóru
fram með mikluin glæsibrag og voru
Japönum til hins mesta sóma, svo og
öllu því frækna íþróttafólki, sem þarna
tók þátt í veglegasta vetraríþróttamóti
heims til þessa. Við birtum hér myndir
af tveim af afreksmönnum mótsins, sem
lítið hefur borið á í íslenzkum fréttum.
Spánverjinn
Fernandes Ochoa
vann óvæntasta
sigurinn á olympíu-
leikunum, er hann
sigraði í svig-
keppninni.
Á eftir klæddist
hann þjó'öbúningi
og spókaði sig með
gullmedaliuna á
maganum.
Sérf ræöingar
segja að Anatoli
Firsov sé fræknasti
ísknattleiksmaður
heims, en hann var
í sigurliði Sovét- .
manna. Það er ekki
furða þótt hann
sé gleiðbrosandi,
því hann klófesti
þriðju olympíugull-
verðlaun sin i
Sapporo. Hann hef-
ur verið í sovázka
sigurliðinu á
þremur siðustu
vetra rolympíu-
leikum í röð.