Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.02.1972, Page 27

Skinfaxi - 01.02.1972, Page 27
 ég sá í fundargerð ársþings HSH 1964 klausu, sem hljóðaði svo: „Lesið var upp úr árskýrslu ÍSÍ þar sem lögð er áherzla á, að dansskemmtanir séu vafasöm fjár- öflunarleið og þyrfti að leita annarra úr- ræða.“ Hvað má þá segja um ástandið nú 1972. Það hlýtur að verða áskorun til allra ungmennafélaga að halda ekki svo- kallaða opinbera dansleiki i sinu nafni á laugardagskvöldum. Ég vil benda á fjár- öflunarleiðir, sem gefa góðan arð og hafa félagslegan þroska í för með sér og tengir um leið hina fullorðnu í samstarf við okkur. Fyrir ungmennafélögin í þorpun- um er ekkert einfaldara en að fara á skak eða skelfisk eða vinna úr sjávar- afurðum hvers konar. Félögin til sveita gætu ræktað kartöfiur eða rófur eða sleg- ið gras og selt. Til að koma á slikum fjáröflunarleiðum þarf góðan undirbún- ing, og kæmi þá til kasta væntanlegs framkvæmdastjóra sambandsins að ferð- ast milli félaga og hrinda framkvæmdum af stað. Ég tel að við verðum að leggja meginþunga á að efla félagsþroskann hjá æskunni, þvi hann er á hraðri niðurleið. Ungmennafélög Framleiðum glæsilegt úrval af íþróttafatnaði sem stendur innfluttum í flestu framar. íslenzku lands'.iðin og beztu félagslið klæðazt að flestu eða öllu leyti HENSON búningum. íslandsmeistarar 1. 2. og 3. deildar í knatt- spyrnu leika í Henson. Öll 7 liðin í 1. deildinni í handbolta leika í HENSON búningum. Sendið teikningu eða lýsingu af gamla eða væntanlegum nýjum búningum og afgreiðslan svíkur engan, því síður verðið. Halldór Einarsson, Lækjargötu 6b. — Sími 11313. — Pósthólf 1015. SKINFAXI 27

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.