Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.04.1973, Qupperneq 12

Skinfaxi - 01.04.1973, Qupperneq 12
Áhugafólk víða um land hefur Iagt fram mikið starf við dreifingu á fræi og áburði á gróðurlaus svæði. Myndin er tekin á Norðuriandi og sýnir sjálf- boðaliða að starfi. melar og uppblásturssvæði eru víða svo að segja við bæjarvegginn. — Ætlar Landvemd að leggja áherzlu á að græða þessi svæði? — Það er vissulega stefnumál okkar, en hér rekumst við á viss félagsleg vandamál, sem eru nokkuð erfið úrlausn- ar. Eigendur og ábúendur þessa lands eru margir og áhuginn misjafn á land- græðslu, og nýtingin er bundin við ein- stakar jarðir en ekki sameiginleg eins og á afréttunum. Ef verulegur árangur á að nást í landgræðslu í byggðum, verður að nást samstaða við hina fjölmörgu landeigendur um uppgræðslu, friðun og eftirlit. Þarna reynist erfitt að samræma sjónarmiðin um ráðstöfun landsins þ. e. að sameina skákirnar í þessum tilgangi. Ég vil sérstaklega beina því til æsku sveitanna og samtaka hennar, að þama bíður hennar stórt og mikilvægt félags- legt verkefni. Ég hef trú á því að unga fólkið geti unnið bug á skammsýnum stundarhagsmunum og nái þess í stað samstöðu um félagslega lausn þessa máls í þágu gróðurverndar og skynsamlegrar landnýtingar. Væru ungmennafélögin ekki tilvalinn vettvangur til þeirrar lýð- ræktunar sem leiddi af sér samvinnu um upgræðslu uppblásturssvæða og ör- foka staða í byggðum landsins? 12 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.