Skinfaxi - 01.12.1973, Blaðsíða 10
ýmsum verkefnum bæði í skóla og félagi
samtímis.
Beint samband foreldra og skóla hlýtur
að mega grundvalla með þátttöku foreldra
í félagsstarfi sem tengist starfi skólans.
Þannig geta foreldrar unnið í félagsstarfi
með unglingunum eða saman í sérfélagi við
mótun og framkvæmd verkefna sem tengj-
ast starfi skólans.
Skólanum er nauðsyn að tengjast sem
mest daglegu lífi. Ekki má byggja starf
skólans einvörðungu á námi lærdómskvera,
því hlýtur að vera mikilvægt að ná til nem-
enda á vettvangi félagsstarfs þar sem vilji
og áhugi hafa jákvæð áhrif.
Þáttur kennara verður vitaskuld að verða
nokkuð mikill í samstarfi félaga og skóla, þó
sérstaklega til þess að tryggja æskileg tengsl
sérstakra verkefna í skóla og félagi. Vissu-
lega má gera ráð fyrir að mörgum kennur-
um jryki þeir ekki skyldir að sinna þessum
verkefnum þar sem ekki er gert ráð fyrir því
í kaupgreiðslu. Því verður að gera hvoru-
tveggja að auka greiðslumöguleika fyrir fé-
lagsstörf og skilningur að koma til hjá
kennurm að betri aðbúnaður nemenda
kemur fram i farsælla starfi og því sé ein-
hverju hægt að fórna af dýrmætum tíma án
þess að taldar séu sekúndur til launa.
Það ætti að vera keppikefli allra sem láta
sig velferð samborgarans einhverju skipta
að grundvalla þannig rekstur og starfsemi
skóla að hann verði viðfeldinn og áhuga-
vekjandi menningarstofnun jress samfé-
lags sem hann á að jojóna. Skólinn verði
jrannig í raun annað heimili allra þeirra sem
að honum standa bæði foreldra, barna og
samfélagsins i heild.
Aukin tengsl félaga og skóla skapa vafa-
laust bjartara og betra mannhf.
G. Gíslason.
Unglingabúðir
HSK
Siðan 1966 hefur Héraðssambandið Skarp-
héðinn staðið fyrir ungmennabúðum á
laugarvatni á hveru sumri.
í júní sl. voru haldin tvö námskeið. Annað
fyrir stúlkur á aldrinum 8—12 ára, þátttak-
endur voru um 20. Hitt námskeiðið var fyrir
drengi á aldrinum 7—13 ára, þátttakendur
voru um 30.
Forstöðumaður ungmennabúðanna var
Þórir Þorgeirsson, oddviti á Laugarvatni, en
hann hefur veitt þeim forstöðu frá því sú
starfsemi hófst fyrir 8 árum.
Leiðbeinendur í sumar auk Þóris voru
Sigríður Skúladóttir og Ingunn Haraldsdótt-
ir, iþróttakennaranemar.
Rekstur ungmennabúða HSK hefur jafnan
notið góðrar fyrirgreiðslu forráðamanna
Laugardalshrepps og fleiri aðila á Laugar- v
vatni. Má þar nefna, að öll árin hefur HSK
fengið barnaskólann á Laugarvatni endur-
gjaldslaust fyrir þessa starfsemi. G.G.
10
SKINFAXI