Skinfaxi - 01.12.1973, Page 22
Setti íslandsmet
Guðrún
Ingólfsdóttir.
í frjálsum íþróttum kvenna hefur Guð-
rún Ingólfsdóttir USÚ náð athyglisverðum
árangri í ár og sett eitt Islandsmet og bætt
UMFÍ-met í tveimur greinum. Guðrún
varpaði kúlunni 12.61 metra og setti þar
með ágætt íslandsmet. Hún átti sjálf
gamla metið — 11.48 m — sett í fyrra. Þá
bætti hún 12 ára gamalt UMFÍ-met Ragn-
heiðar Pálsdóttur í kringlukasti úr 35.80 m
í 36.16 m. Ekki er að efa að þessi kornunga
stúlka á eftir að stórbæta árangur sinn í
þessum greinum, en hún er aðeins 16 ára
gömul. Guðrún keppir fyrir Ungmenna-
sambandið Úlfljót í Austur-Skaftafellssýslu.
HREINN HALLDÓRSSON: 18,29 og 51,84
Það kemur engum á óvart sem til þekkja,
að Hreinn Halldórsson HSS hefur í ár hald-
ið áfram að bæta árangur sinn í köstum.
Hann hefur nú höggvið svo nærri íslands-
metinu í kúluvarpi að hann skortir aðeins
19 sentimetra til að jafna met Guðmundar
Hermannssonar. Hreinn er efstur í lcúlu-
varpi á afrekaskrá íslands í ár og annar í
kringlukasti. I báðum greinum setti hann
ný ÚMFÍ-met: 18.29 m í kúluvaqii og 51.84
m í kringlukasti. Þá er Hreinn efstur á
UMFÍ-skránni í sleggjukasti í ár með 41.32
m og 4. á Islandsskránni.
Hreinn keppir alltaf undir merkjum Hér-
aðssambands Strandamanna, og í sumar
brá hann sér norður í heimahérað sitt og
keppti á héraðsmóti HSS svo sem sjá má
í frétt af því móti hér í blaðinu.
í fyrra kastaði Hreinn lengst 17.99 m í
kúluvarpi. í sumar fór hann yfir 18 metra
þröskuldinn og við óskum honum allra
heilla á næsta ári.
'm
22
SKINFAXI